Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1962, Page 23

Skinfaxi - 01.04.1962, Page 23
Ársbréf sambandsstjórnar U. M.F. í. Félagatal. Árið 1961 voru í Ungmennafélagi Is- lands 19 héraðssambönd með 173 félögum, er töldu 9851 félaga. Fimm félög voru í U.M.F.l. utan héraðssambands með 874 félagsmönnum. Félagar í U.M.F.Í. voru því samtals 10725. Auk þess voru um 20 félög, sem ekki eru talin hér með, en þau voru í vanskilum við héraðssamböndin. Ætla má að í þeim félögum hafi verið um 1300 félagsmenn. Ungmennafélagar þá samtals 12221. Stjórn. Stjórn sambandsins skipuðu: sambands- stjórn, séra Eiríkur J. Eiríksson, þjóð- garðsvörður, ÞingvöIIum; ritari, Jón Ólafs- son, bóndi, Brautarholti; féhirðir, Ármann Pétursson, skrifstofumaður, Reykjavík; varasambandsstjóri, Skúli Þorsteinsson, kennari, Reykjavík; meðstjórnandi, Stefán Ólafur Jónsson, kennari, Reykjavík. Vara- menn: Lárus Halldórsson, skólastjóri, Brú- arlandi og Gestur Guðmundsson, skrif- stofumaður, Reykjavík. Starfsmenn. Framkvæmdastjóri sambandsins var Skúli Þorsteinsson. Skrifstofan var opin tvær og hálfa klukkustund alla virka daga nema laugardaga. 1 júní, júlí og ágúst var hún opin lengur, þegar framkvæmdastjóri var ekki að heiman á vegum sambandsins. Framkvæmdastjóri var til viðtals í heima- síma utan skrifstofutíma. Skrifstofa U.M. F.f. er á Lindargötu 9 A. Ritstjóri Skin- tíu ára afmæli sambandsins. Afmælismót sambandsins fór fram í Þjórsártúni 23. júlí. Keppt var í 15 íþróttagreinum. Um 300 manns tóku þátt í skrúðgöngu íþrótta- manna. Sextíu piltar sýndu leikfimi. Þjóð- dansa sýndu 120 manns frá 12 sambands- félögum. Fjögur félög tóku þátt í knatt- spyrnumóti sambandsins. Hafsteinn Þor- valdsson og Þórir Þorgeirsson heimsóttu sambandsfélögðin og leiðbeindu í íþróttum og þjóðdönsum. Haldin voru tvö glímunám- skeið. Sambandið sér um síðu í blaðinu Suðurland og ræðir þar félags- og menn- ingarmál. Sambandið styrkir kvikmynda- töku í héraðinu, sem nú stendur yfir. Við tilkomu hinna nýju og glæsilegu félags- heimila og löggæzlusveita fer ástand í bindindismálum batnandi. Sambandsþing mælti gegn bruggun áfengs öls í landinu. Sambandið vinnur að skógrækt við íþrótta- völl sinn og veitir mikla aðstoð við gróður- setningu í Þrastaskógi. Sum sambandsfé- lögin sinna nokkuð starfsíþróttum. Ráðu nautar Búnaðarsambands Suðurlands veita tilsögn í búfjárdómum. Unnið er að ör- nefnasöfnun og henni lokið í sumum fé- lögunum. Sambandið hefur beitt sér fyrir uppsetningu bæjar- og vegamerkja og mið- ar því vel. Félagsstarf hinna einstöku félaga er misjafnt. Sum starfa af miklu fjöri, en þar sem miður gengur vantar tilfinnanlega vel hæfa forustumenn. S K I N F A X I 23

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.