Skinfaxi - 01.04.1963, Blaðsíða 5
lýst rótum þeim, er S.U.A.H. er sprottið
af, svo betur megi skilja starfsemi þess
frá fyi'stu tíð.
HÉRAÐSSAMBANDIÐ STOFNAÐ
Starfstímabil þess árin 1912—1937.
Viðbrögð félaganna urðu þau, að níu
þeiira sendu fulltrúa á fundinn og voru
það þessir:
Frá Málfundafélagi Bólstaðarhlíðarhrepps:
Hafsteinn Pétursson, Erlendur Erlendsson.
Frá Málfundafélagi Svínavatnshrepps:
Jón Pálmason, Páll Friðriksson.
Frá Málfundafélaginu Framtíðin:
Sigurgeir Björnsson, Guðmundur Sigurðsson.
Frá Málfundafélagi Sveinsstaðahrepps:
Magnús Jónsson.
Frá Málfundafélaginu Fjólan:
Kristófer Kristófersson.
Frá Ungmennafélagi Blönduóss:
Páll Jónsson, Ingibjörg Benediktsdóttir.
Frá Kvenréttindafélagi Blönduóss:
Rannveig Stefánsdóttir, Sigurrós Þórðardóttir.
Frá Framsóknarfél. Laxdal:
Níels Jónsson, Sigvaldi Sveinsson.
Frá Ungmennafélaginu Framsókn:
Sigurjón Jóhannsson, Magnús Björnsson.
Mættur var og annar fundarboðandinn,
er ekki var fulltrúi, Jón Kristófersson.
Fundarstjóri var kosinn Jón Pálmason
og ritari Ingibjörg Benediktsdóttir.
Fyrst var tekið til umræðu aðalmál
fundarins — stofnun héraðssambandsins.
Urðu menn á eitt sáttir. Kosin var þegar
nefnd til að semja frumvarp að lögum
fyrir sambandið. Var frumvarp nefndar-
innar samþykkt síðar á fundinum. Var þá
og samþykkt að senda frumvarpið til fé-
laganna og gefa þeim kost á að gera við
það breytingartillögur, sem teknar yrðu til
meðferðar á stofnfundi.
Sigurjón Jóhannsson lýsti fyrir fundin-
um, að Fjórðungssamband Ungmennafé-
laganna á Norðurlandi mundi gefa kost á
að íþróttamót yrði haldið á Blönduósi vorið
1913. Mælti framsögumaður fastlega með,
að málið væri athugað og mótið undirbúið,
ef fært þætti. Fundurinn fagnaði þessu til-
boði og vísaði málinu til umsagnar félag-
anna. Nefnd var kosin til að annast frek-
ari aðgerðir í málinu. Nefndina skipuðu:
Sigurjón Jóhannsson, Páll Jónsson og Ní-
els Jónsson.
önnur mál, sem rædd voru á fundinum
voru: Ingibjörg Benediktsdóttir mælti
fyrir því, að væntanlegt héraðssamband
gæfi út vélritað blað eða handritað, ef ekki
væri annars kostur, og tækju félögin virk-
an þátt í framkvæmdinni. Var málið nokk-
uð rætt, en engin ályktun gerð.
Jón Kristófersson lagði til, að sambands-
félögin fengju hinn kunna fræðimann
Guðmund Hjaltason til að flytja fyrirlestra
á félagsfundum eða almennum samkomum,
er haldnar væru á vegum félaganna. Upp-
lýsti ræðumaður, að Guðmundur mundi
fara norður í Skagafjörð næsta haust.
Fundurinn taldi æskilegt, að félögin gæfu
þessu gaum og tækju málið til athugunar.
Fjörugar umræður urðu um hófsemi, er
Sigurgeir Björnsson framsagði, og jafn-
réttismál kvenna og karla. En framsögu í
því síðarnefnda hafði Rannveig Stefáns-
dóttir. Ályktun var gerð út af jafnréttis-
málinu á þá leið, að fundurinn teldi kröfur
kvenfélaganna eðlilegar og réttmætar.
Þann 30. marz 1912 var aðalstofnfundur
héraðssambandsins haldinn á Blönduósi í
veitingahúsinu, sem almennt var kallað þá
„Vertshús“. Hjónin Kristján Halldórsson
og Sigríður Sigurðardóttir ráku veitinga-
SKIN FAXI
5