Skinfaxi - 01.04.1963, Page 16
fjárhæð og veitti málinu margs konar ann-
an stuðning.
Á þessu þingi, árið 1949, var samþykkt,
að samtökin beittu sér fyrir töku héraðs-
kvikmyndar. Var síðar samið við Kjartan
Ó. Bjarnason um myndatökuna.
Fleiri félagssamtök í héraðinu lögðu fé
af mörkum til gerðar kvikmyndarinnar,
enda framkvæmdin fjárfrek.
Aðrar stofnanir, sem U.S.A.H. styrkti
með nokkrum fjárframlögum, voru:
Kvennaskólinn á Blönduósi, Reykjalaug,
Sundlaug Skagstrendinga og félagsheimil-
ið Húnaver í Bólstaðarhlíðarhreppi, er
hlaut t. d. 43 þús. kr. framlag.
Þá er að geta þyngsta fjármálabaggans,
sem sambandið ber á herðum sér, félags-
heimilisins á Blönduósi.
Á héraðsþinginu árið 1951 er því fyrst
hreyft, að nauðsyn væri, að byggja félags-
heimili, sem yrði miðstöð fyrir félagsstarf-
ið í héraðinu. Reyndist samkomuhúsið á
Blönduósi þegar of lítið og svaraði ekki
kröfum tímans. Héraðsþingið samþykkti
að veita málinu stuðning og verða meðeig-
andi í félagsheimilinu, þegar það yrði
byggt. Engar áætlanir lágu þá fyrir um
stærð hússins og því ekki heldur áætlun
um byggingarkostnað.
Á héraðsþinginu 1956 er málið tekið
fyrir á ný. Hafði þá sveitarstjórn Blöndu-
óshrepps tekið forustu í málinu, látið gera
frumteikningar að félagsheimili, sem reisa
skyldi á Blönduósi, og sótti um lögboðinn
styrk úr Félagsheimilasjóði. Hafði íþrótta-
fulltrúi gefið samþykki sitt til að heim-
ilið yrði reist.
Lausleg áætlun lá fyrir um stærð húss-
ins og byggingarkostnað.
Á þessu héraðsþingi, 1956, var sam-
þykkt, að U.S.A.H. gerðist meðeigandi í
féiagsheimilinu að 15 af hundraði af fram-
lagi eigenda.
Á næsta ári, 1957, var stofnað eigenda-
félag félagsheimilisins. Eigendur voru auk
U.S.A.H. Blönduóshreppur, Austur-Húna-
vatnssýsla og fimm félög á Blönduósi. Allir
aðilar voru sammála í höfuðatriðum um
byggingu hússins, en deilt var lengi um
staðsetningu þess og stærð. Um síðir náð-
ist þó samkomulag um hvorttveggja. I
deilu þessari báru þeir sigur af hólmi, sem
vildu byggja svo stórt og vandað hús, að
það fullnægði ekki aðeins fyllstu kröfum
líðandi stundar, heldur mundi og endast
til síns hlutverks um langan aldur.
Húsið er enn í byggingu, en nokkur
hluta þess þegar tekinn í notkun. Þykir nú
sýnt, að byggingarkostnaður, að viðbættu
verði húsbúnaðar, verði allt að sjö millj-
ónir króna.
Án þátttöku U.S.A.H. hefði reynzt erf-
itt að leysa þetta stórmál, og víst má telja,
oð ógerlegt hefði verið að byggja húsið
svo stórt og vandað sem það verður. Fjár-
framlag sambandsins er mikið og krefst
mikils dugnaðar og fórnfýsi að inna það
af höndum. En fyrir það fæst líka mikið.
Húnavakan, sem er annað óskabarn U.S.
A.H., fær þarna húsnæði við sitt hæfi.
Verið er að byggja íþróttavöll skammt
frá félagsheimilinu. Þegar hann er full-
gerður, verður hann og heimilið notað jöfn-
um höndum fyrir héraðsmótin. Hafa Umf.
Hvöt á Blönduósi og U.S.A.H. annazt
byggmgu vallarins. Hafa þau lagt fram
þann hluta kostnaðarins, sem umfram hef-
ur orðið framlög (styrki) hins opinbera.
Þó að ekki verði með sanni sagt, að U.S.
A.H. hafi haft úti allar klær til að afla sér
16
SKINFAXI