Skinfaxi - 01.04.1963, Qupperneq 17
tekna, þá hefur það reynzt aflaldó síðustu
fimmtán árin, enda hefði það annars ekki
getað veitt styrki á báðar hendur til ýmissa
þrifaframkvæmda í héraðinu.
Félagsheimilið, Blönduósi.
Húnavakan hefur frá sinni fyrstu tíð
gegnt margs konar hlutverki. Fólkið hefur
átt þar kost á ódýrum, hressandi skemmt-
unum, fengið forsmekk af fögrum listum
í söng og sögnum, leik og ljóði. Þá hefur
„vakan“ veitt þeim, sem listamennt þrá,
tækifæri fleiri en annars til að æfa hug-
stæðar listir í fórnfúsu starfi og láta ljós
sitt skína á almannaleiðum.
Húnavakan hefur og verið sá aflgjafi,
sem gert hefur Héraðssambandinu kleift
að ráðast í fjárfrekar framkvæmdir og
jafnhliða veita verulega styrki til margs
konar annarra framfara í héraðinu, eins
og fyrr hefur verið frá sagt.
Þrátt fyrir mikinn tilkostnað, því að ekk-
ert hefur verið til sparað, hefur reynslan
orðið þessi. Má þakka það fórnarstarfi
þeirra, er að skemmtununum unnu og fjöl-
menni því, sem vökurnar sækir.
Hreinar tekjur af héraðsmótunum hafa
verið nokkrar, en aldrei náð hárri upphæð,
því þó að þau væru fjölsótt var tilkostnað-
ur eðlilega mikill.
ÍÞRÓTTIR
Síðustu fimmtán ár í sögu U.S.A.H. hef-
ur verið mikil gróska í íþróttastarfsemi
sambandsins og árangur orðið eftir því.
Keppni við önnur héraðssambönd.
Árið 1953 keppti U.S.A.H. í frjálsum
íþróttum við Ungmennasamband Dala-
manna. Keppnin fór fram að Nesodda í
Dalasýslu.
U.S.A.H. vann keppnina með 105:79
stigum.
Árin 1956, 1957 og 1958 keppti U.S.A.H.
við Ungmennasamband Strandamanna.
U.S.A.H. sigraði í öll skiptin.
Þá kepptu U.S.A.H. og U.M.S.B. einnig
í frjálsum íþróttum árið 1960. Þá keppni
vann U.M.S.B. með 761/j : 75i/2 stigum.
Sumarið 1961 fór fram þriggja sam-
banda keppni í frjálsum íþróttum á Ferju-
kotsbakka í Borgarfirði Þar kepptu Í.A.,
U.M.S.B. og U.S.A.H. Keppiíina vann
íþróttabandalag Akraness, fékk 123 stig,
U.S.A.H. 118 stig og U.M.S.B. 112 stig.
Sigrar U.S.A.H. á þessum mótum eru
ávextir mikils starfs sambandsins og sam-
bandsdeildanna og fórnarvilja einstakling-
anna. Segja má, að allt íþróttalið U.S.A.H.
stæði sig með prýði í drengilegum leik við
vaska mótherja. en beztum árangri náðu á
þessum mótum: Pálmi Jónsson, Hörður
S K I N F A X I
17