Skinfaxi - 01.04.1963, Síða 24
Stjórn U.S.A.H. 1962. Frá vinstri: Stefán Á. Jónsson
ritari, Ingvar Jónsson form., Pétur Sigurðss. gjaldk.
Sambandsfélögin
Frá fyrstu dögum Héraðssambands
Austur-Húnavatnssýslu hafa mörg félög
verið innan vébanda þess, sem nú eru horf-
in af sviðinu. Hér verður þeirra þó að
nokkru getið ásamt þeim félögum, er nú
skipa U.S.A.H.
Ungmennafélagið Framsókn.
Að lokinni messu í Höskuldsstaðakirkju
á jóladaginn árið 1910 komu nokkur ung-
menni saman á fund, er Sigurjón Jóhanns-
son hafði boðað. Á fundinum mælti hann
fyrir, að stofnað yrði ungmennafélag í
Höskuldsstaðasókn.
Nefnd var kosin til að semja lög fyrir
vtentanlegt félag og boða til stofnfundar.
Nefndina skipuðu: Sigurjón Jóhannsson,
Magnús Björnsson Sveinn Hannesson,
Steingrímur Davíðsson og Vilhelmína
Andrésdóttir.
Stofnfundur félagsins var haldinn að
Höskuldsstöðum þ. 8. jan. 1911. Stefnu-
skrá félagsins var sú sama og annarra
ungmennafélaga landsins. í aðalstjórn fé-
lagsins voru kosnir: Sigurjón Jóhannsson
formaður, og meðstjórnendur Magnús
Björnsson og Páll Steingrímsson. Áður en
umf. var stofnað hafði um nokkurra ára
bil starfað málfundafélag í sókninni. Því
stýrði Jakob Frímannsson frá Kjalarlandi,
gáfumaður og ljóðskáld gott. Var hann þá
barnakennari þarna á svæðinu. Var hann
áhugamaður mikill um öll menningarmál.
Mörg fyrstu árin var félagið fjölmennt.
Flest ungt fólk á félagssvæðinu gekk í fé-
lagið þegar á fyrsta starfsári þess. Félags-
fundir voru vel sóttir, umræður fjörugar
og hugsjónaeldurinn brann glatt í ungum
brjóstum. Á flestum fundum voru lesin
upp ljóð eða valdar sögur eftir öndvegis-
skáldin. Félagsblaðið Neisti var lesið upp
á fundunum. Blaðið, sem var handritað,
kom fyrst út árið 1912 og lengi síðan.
Margir félagsmenn skrifuðu í blaðið um
dagskrármál félagsins og önnur hugðar-
efni, birtu þar frumort ljóð og sögur.
Eftir málfundinn var gengið til leika, ef
veður var gott. Æfðar voru glímur og
knattspyrna. En fótknött keypti félagið á
fyrsta starfsári sínu 1911. Var Sigurjón
Jóhannsson mikill áhugamaður um íþróttir
allar sem önnur félagsmál. Hann hafði
æft knattleik á Akureyri og kenndi nú fé-
lögum sínum. Árið 1911 byggði félagið
sundpoll í Grenjagili, niður við sjó, í landi
Höskuldsstaða og fékk til sundkennslu
Stefán Vagnsson, nú búsettan á Sauðár-
króki. Kenndi hann þar tvö vor. Ekki var
síðan kennt sund í Grenjagili, enda beind-
ust þá sjónir manna til Reykjalaugar.
Ungmennafélagið Framsókn vildi eftir
beztu getu leggja skógræktinni lið,en skóg-
24
S K I N F A X I