Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1963, Page 34

Skinfaxi - 01.04.1963, Page 34
bandsdeild í U.S.A.H. 1938, er sambandið var endurreist og hefur skipað þar sæti síðan. Margir beztu starfsmenn U.S.A.H. eru Fram-félagar: Má þar fyrst til nefna Ingvar Jónsson, sem nú er stjórnarformað- ur U.S.A.H. og Fritz Magnússon, sem lengi hefur verið ötull starfsmaður sam- bandsins á Húnavöku og héraðsmótum, svo og fleiri, þó að ekki verði nefndir hér. Þá hefur leikflokkur Fram, eins og áður grein- ir, lagt á sig mikið erfiði til að gera veg U.S.A.H. sem mestan og veita þeim mörgu, sem leikhúsið sóttu, ánægju og göfgandi stund. Félagar Ungmennafélagsins Fram eru nú 53 að tölu. Núverandi stjórn félagsins skipa: Formaður Friðjón Guðmundsson, meðstjórnendur Guðmundur Guðnason og Adólf Berndsen. Ungmennafélag Þingbúa. Á stofnfundi Sambandsfélags Austur- Húnavatnssýslu 30. marz 1912 mættu full- trúar frá Ungmennafélagi Sveinsstaða- hrepps. Hafði félagið áður heitið Mál- fundafélag Sveinsstaðahrepps. Ungmenna- félagið var sambandsfélag til ársins 1915, en hvarf þá af sviðinu, en hefur starfað eitthvað lengur á heimaslóðum. Árið 1935, þann 25. ágúst, var á ný stofnað ungmennafélag í Sveinsstaða- hreppi, sem hlaut í skírninni nafnið Umf. Þingbúa. Hvatamenn að stofun félagsins voru sr. Þorsteinn Gíslason í Steinnesi og Hall- dór Jónsson bóndi að Leysingjastöðum. Skipuðu þeir fyrstu stjórn félagsins ásamt Ölafi Magnússyni bónda á Sveinsstöðum. Formaður var kjörinn Halldór Jónsson. Var hann óslitið formaður félagsins til árs- ins 1941 og fleiri tímabil síðar. Ungmennafélag Þingbúa hefur m. a. unnið við skógrækt í Ölafslundi móti öðr- um aðilum. Skáktafl hafa félagsmenn stundað mik- ið. Hafa Sveinstæðingar löngum sent snjalla taflmenn á skákmótin. Er Jónas Halldórsson nú skákmeistari Norðurlands. Stjórn Ungmennafélags Þingbúa skipa nú: Ellert Pálmason formaður, Magnús Pétursson og Björn Magnússon, með- stjórnendur. Ungmennafélag Svínavatnshrepps. Félagið var stofnað að Stóra-Dal 25. fe- brúar 1928. Stofnendur félagsins voru 37 að tölu, fullorðnir menn og unglingar. Kosnir voru í fyrstu stjórn þess Björn Pálsson, Jón Guðmannsson, Guðrún Jónas- dóttir. Félagið hélt oft málfundi og skemmtan- ir, bæði innbyrðis og almennar samkomur. Árið 1936 byggði félagið samkomuhús úr steinsteypu. Stendur húsið við Sléttá, skammt frá Auðkúlurétt, neðan við mynni Sléttárdals, enda er húsið nefnt Dalsmynni. Svínavatnshreppur kostaði byggingu húss- ins að einum þriðja hluta. Áður fyrr starfaði málfundafélag í Svínavatnshreppi. Var það félag eitt af stofndeildum. S.U.A.H. árið 1912 og starf- aði innan sambandsins fyrstu tíu árin, eða fram yfir 1920. Ungmennafélagið Vatnsdælingur. Félagið var stofnað að Hofi í Vatnsdal 1. apríl 1925. Var félagið arftaki Málfunda- félags Áshrepps, er hafði áður starfað í dalnum um langt skeið, og meðal annars 34 SKINFAX I

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.