Skinfaxi - 01.04.1963, Side 43
Eftirmdli
Þeim má ljóst vera, er starfað hafa að
félagsmálum U.S.A.H. eða sambandsdeild-
anna, að hér að framan hefur verið farið
of fljótt yfir fimmtíu ára starfssögu.
Sjálfsagt finnst ýmsum mörgu sleppt, er
frásagnar var vert, og eitt og annað fleira
ábótavant. Ég, sem hef ritað þessi sögu-
brot, er auðvitað ekki dómbær á eigin hand-
brögð, en finn þó vel gallana. En hvað
snertir önnur skilyrði til þessa verks, verð-
ur það að segjast, að þau hafa verið hin
erfiðustu. Margar mikilvægar heimildir
fyrir starfssögu sambandsins og deilda
þess hafa ekki verið fyrir hendi. Margar
þinggjörðir U.S.A.H. virðast hafa glatazt
og líkt er ástatt með gjörðabækur Sam-
bandsfélaganna.
Þá var og mjög bagalegt hve erfitt
reyndist að afla þeirra gagna, er þó voru
til í vörzlum félagsdeildanna, og það hvað
naumur tími gafst til úrvinnslu þeirra
gagna, er þó komu. Loks má geta þess, að
stærð ritsins er allt um of takmörkuð, og
hefur þó ritstjórinn, séra Eiríkur Eiríks-
son, gert sitt bezta til að rýmka stærðina
svo sem kostur var. Þá hefur samþjöppun
efnisins valdið miklum erfiðleikum og orð-
ið til þess að ritið er ófullkomnara en efni
stóðu þó til.
Þrátt fyrir allt þetta vona ég, að sögu-
ágripið gefi nokkuð sanna mynd af starfi
U.S.A.H. og deildum þess á liðnu fimmtíu
ára skeiði. Þegar ég lít um öxl, vil ég þess
eins óska, að samtök U.S.A.H. megi ætíð
vinna í anda þeirra hugsjóna, er fyrst
mörkuðu stefnu ungmennafélaganna.
Islandi allt. St. D.
Ungmennafélag íslands
ámar U.S.A.H. heilla
í tilefni af 50 ára afmælinu
og þakkar gott samstarf
á liðnum árum.
Stjórn U.M.F.Í.
Gestamót.
Stjórn U.M.F.Í. hefur í vetur haldið 2 fundi
með ungmennafélögum utan af landi, sem dvelja í
Reykjavík um stundarsakir. Gert er ráð fyrir að
sir.na því máli hetur næsta vetur.
Afmæli.
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga hélt há-
tíðlegt 50 ára afmæli sitt 24. febrúar sl. Guðjón
Ii.gimundarson á Sauðárkróki mætti í hófinu fyrir
hónd U.M.F.Í., flutti ávarp og færði sambandinu
fánastöng ásamt fána U.M.F.f. að gjöf.
Ungmennasamband Kjalarnesþings hélt hátíðlegt
40 ára afmæli sitt 17. marz sl. Sambandsstjóm U.M.
F.í. var boðin í hófið. Framkvæmdastjóri U.M.F.Í.
flutti ávarp og afhenti afmælisgjöf.
Sk. Þ.
Héraðsþing.
Héraðsþing Héraðssambands Suður-Þingeyinga
var haldið að Skjólbrekku við Mývatn dagana 30.
og 31. marz 1963. Framkvæmdastjóri U.M.F.f. sat
þingið. Þingið var mjög vel sótt og fór fram með
myndarbrag.
S K I N F A X
43