Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1968, Side 5

Skinfaxi - 01.12.1968, Side 5
Meðal hinna myndarlegu félagsheimila, er byggð hafa verið á síðari árum, er Valaskjálf á Egilsstöðum, sem sést hér nýreist. ef það væri kepyt af miðstöð þeirra sjálfra, er annaðist að jafnaði innkaup fyrir marga aðila. Hvað mundi miðstöð félagsheimila leysa? í greinargerð þessari er gert ráð fyrir að samtök eigenda félagsheimilanna ættu, stjórnuðu og rækju fyrirgreiðslu- skrifstofu og hlytu til þess ríkisstyrk. Ekki er ástæða, að til skrifstofu þessar- ar eða miðstöðvar þyrfti mikinn mann- afla. Með hagkvæmum rekstri hennar ætti einn dugandi framkvæmdastjóri, er nyti stuðnings góðrar vélritunar- stúlku hálfan daginn, að geta annað þeim störfum, er að bærust. Þá er tekin er til athugunar starf- semi fyrrnefndrar stofnunar mundi rétt að skipta henni í þrjá meginþætti: 1. Aðstoð við almennan rekstur hús- anna. 2. Aðstoð og skipulagningu félags- legs rekstrar og menningarlegs. 3. Útgáfu upplýsingarits. I. Almennur rekstur félagsheimilanna: Stofnunin gæti unnið að m. a.: a. Útvegun kvikmyndavéla og vara- hluta í slíkar vélar. b. Annast um innkaup á ýmsum rekstrarvarningi fyrir heimilin. c. Annast innkaup á húsbúnaði, borðbúnaði o. fl. slíku er heimilin þurfa með. d. Útvegað sérhæfða aðila til að annast lökkun og viðhald gólfa og viðgerðir kvikmyndavéla, skipulagt ferðir þeirra til að gera þær ódýrari. SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.