Skinfaxi - 01.12.1968, Blaðsíða 10
Frá undirbúningi
Húsafcllsmótsins.
Vilhjálmur Einarsson
formaður UMSB
fylgist með
framkvæmdum.
Mjög var vandað til
undirbúnings
hátíðarinnar.
um verzlunarmannahelgina. Áf engis •
neyzla er stranglega bönnuð, og þeir
sem sáust drukknir voru tafarlaust
fjarlægðir, en þá mátti telja á fingrum
annarrar handar.
Mislyndir veðurguðir
Að Húsafelli kom gífurlegur mann-
fjöldi, líklega 14—15 þúsund manns.
Náttúrufegurð staðarins laðar marga
til sín, og auk þess hafði verið skipu-
lögð mjög fjölbreytt skemmtidagskrá.
Því miður var veður mjög óhagstætt
á laugardeginum og spillti það öllum
brag hátíðarinnar. En á sunnudeginum
var veður gott og fór þá m. a. fram í-
þróttakeppni og íþróttasýningar. For-
ráðamenn mótsins telja að um 3—4
þúsund unglingar hafi komið til móts-
ins án fylgdar fararstjóra eða foreldra,
en mikið var um að fjölskyldur sæktu
mótið. Nokkuð bar á ölvun unglinga,
einkum í hinu slæma veðri aðfarar-
nótt sunnudags og setti það auðvitað
blett á þessa annars myndarlegu hátíð.
Þarna var þó um tiltölulega fámennan
hóp unglinga að ræða. Lögreglan hafði
afskipti af 60—70 unglingum vegna
ölvunar, en allur þorri unglinganna
kom mjög vel fram. Forráðamenn Húsa
fellsmótsins höfðu lagt mikla áherslu
á það að ekki yrði neytt áfengis á mót-
inu og er leitt til þess að vita að fá-
mennur hópur uppivöðslufólks skuli
reyna að eyðileggja þá viðleitni. Mikil
vinna og kostnaður var lagður í undir-
10
SKINFAXI