Skinfaxi - 01.12.1968, Blaðsíða 14
töku á sambandsráðsfundinum í októ-
ber sl.
Framhald skákkeppni
Þessi keppni þótti takast svo vel að
stjórn UMFl ákvað að leitast við að
halda áfram að gangast fyrir slíkum
skákmótum á vegum ungmennafélags-
hreyfingarinnar. Var leitað til Skák-
sambands Islands um álit og aðstoð
og fengust þar mjög jákvæðar undir-
tektir. Hefur tekizt hin ágætasta sam-
vinna þessara aðila um þessi mál og er
UMFl Skáksambandinu þakklátt og þá
sérstaklega framkvæmdastjóra þess,
Þóri Ólafssyni, sem veitt hefur mikil-
væga aðstoð með samningu reglugerð-
ar um Skákþing Ungmennafélags Is-
lands.
Á sambandsráðsfundinum í október
lagði stjórn UMFl fram eftirfarandi til-
lögu um framhald skákkeppni á veg-
um UMFl ásamt meðfylgjandi reglu-
gerð um hana.
Tillagan:
Sextándi sambandsráðsfundur UMFÍ
1968 samþykkir að UMFÍ komi á fót
árlegri sveitarkeppni í skák í svipuð-
formi og keppnin á þessu ári, sem lauk
á Landsmótinu á Eiðum. Næsta keppni
verði vorið 1969. Þátttaka sé jafnan
heimil öllum sambandsaðilum UMFl.
UMFl útvegi til keppninnar verð-
launagrip. Skal það vera farandgripur,
er afhentur skal sigursveit hverju
sinni til varðveizlu til næsta árs.
Keppnin fari fram samkvæmt eftir-
farandi reglugerð, sem samin er í sam-
ráði við Skáksamband íslands.
Reglugerð um sk'ákþmg UMFÍ
1. Mót þetta skal haldið árlega á tíma-
bilinu frá 15. maí, og skal mótið
auglýst með minnst eins mánaðar
fyrirvara.
2. Keppt skal í fjögurra manna sveit-
um og má hvert héraðssamband og
hver beinn aðili að UMFÍ senda eina
sveit. Heimilt er að hafa 2 vara-
menn í hverri sveit að auki.
3. I hverri sveit mega eigi vera sterk-
ari menn en sem hér segir: — 2
menn úr landsliðs- og meistarafl.
1 maður úr 1. fl. (samkv. viður-
kenndri flokkaskipt. Skáksamb. ís-
lands). 1 maður úr II fl. — Vara-
menn: 1 maður úr meistaraflokki
1 maður úr II fl. —- Varamenn mega
aðeins tefla 50% af skákfjölda að-
almanna.
4. Telft skal eftir viðurkenndum regl-
um S. I. og skal UMFl hafa samráð
við stjórn S.I. um tilnefningu skák-
stjóra.
5. Skákstjóri setur nánari reglur um
keppnistilhögun hverju sinni með
tilliti til fjölda þátttakenda og að-
stæðna, en stungið er upp á þessum
tímatakmörkunum til að auðvelda
framkv. mótsins:
Hver keppandi skal hafa 1 x/z klst,
fyrir fyrstu 40 leikina, en síðan skal
skákinni lokið á ^ klst.
6. Telft skal til úrslita á áðurnefndu
tímabili, nema þau árin sem lands-
mót UMFÍ fer fram. Þá skulu und-
anrásir telfdar á nefndu tímabili, en
síðan skal telft til úrslita á lands-
mótinu á aðalmótsstað.
7. Sigursveitin skal hljóta titilinn —-
„Skákmeistari UMFÍ“.
14
SKINFAXI