Skinfaxi - 01.12.1968, Blaðsíða 8
Fjölsóttar
útihótfðir
Útiskemmtanir á sumrin draga til sín
mikinn mannfjölda, einkum ungt fólk.
Sumrin eru stutt hér á landi og engan
þarf að undra þótt fólk hafi meiri mæt-
ur á útiskemmtunum en öðrum mann-
fagnaði meðan þeirra er kostur. Á und-
anförnum árum hefur stórum úti-
skemmtunum með fjölbreyttum dag-
skráratriðum farið fjölgandi og hafa
þær orðið tilefni margra skrifa og mik-
illa umræðna.
Á flestum slíkum skemmtunum eru
unglingar í miklum meirihluta og
skapar það að sjálfsögðu ýmis vanda-
mál og leggur ábyrgð á hendur þeim,
sem fyrir hátíðahöldum standa.
Ætla má, að skilningur á lausn þessa
vanda, er knýr að dyrum félagsheimil-
anna sé það almennur, að úr stofnun
umræddra samtaka gæti orðið. UMFf
átti frumkvæði að máli þessu fyrir um
það bil áratug, þó ekki yrði úr stofnun
samtakanna þá, (sbr. upphaf greinar-
gerðar). Þörfin er hinsvegar brýn og
engum nær að leysa hana, en hinum
frjálsu félagasamtökum, er hér eiga
hlut að máli.
Því ber að vekja málið upp aftur og
hrinda því í framkvæmd.
Það má vera ungmennafélögum mik-
ið ánægjuefni að hvarvetna hafa hinir
beztu menn í ræðu og riti talið lands-
mót UMFI hafa verið hinar beztu fyr-
irmyndir varðandi prúðmannlega fram
komu og menningarlegan skemmtana-
máta æskufólks. Landsmótin á Laug-
arvatni fyrir þremur árum og Eiðamót
ið í sumar eru flestum í fersku minni.
Á þessum stöðum sannaðist að vmga
fólkið getur skemmt sér við útilíf,
dans, íþróttir og fjölþætt dagskráratr-
iði og haft óblandan ánægju af án þess
að örli á drykkjuskap eða ólátum, sem
teljandi sé.
Því miður verður ekki sama saga
sögð um ýmsar aðrar útiskemmtanir,
og margir hafa spurt þeirrar spurn-
ingar, hvernig á þessu standi þar sem
að stórum hluta er um sama fólkið að
ræða á landsmótum UMFÍ og öðrum
útihátíðum.
Hátíðir æskunnar
Ekki orkar það tvímælis, að höfuðá-
stæðan fyrir menningarbrag landsmóta
UMFÍ er góð skipulagning og sú hug-
sjón, sem að baki þeim stendur með
föstum rótum í íslenzkri þjóðmenn-
ingu. Það leggur enginn af stað á lands-
mót UMFl í þeim tilgangi að drekka
8
SKINFAXI