Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1968, Qupperneq 11

Skinfaxi - 01.12.1968, Qupperneq 11
búning og framkvæmd mótsins þannig að allt mætti fara sem bezt úr hendi. Eitthvað fyrir stafni I Galtalækjarskógi stóðu ungtemplar- ar fyrir útihátíð, sem tókst vel. Um- gengni var með ágætum og félagar úr bindindissamtökunum annast alla gæzlu á þessum mótum. Þarna munu hafa verið 4—5 þúsund manns. Þjóð- hátíðin í Vestmannaeyjum fór fram svipað og venjulega en þessi hátíð hef- ur að sjálfsögðu nokkra sérstöðu enda byggð á erfðavenjum Eyjaskeggja. Að- komufólk mun hafa verið nokkru færra en venjulega. f Þórsmörk munu hafa verið um 3000 unglingar en þar hafði verið auglýst ,,Pop-hátíð“. Því er ekki að neita að ölvun var allmikil, en ólæti lítil. 12 lögregluþjónar gættu laga og reglna og aðstoðuðu unga fólkið. Því miður hefur drykkjuskapur viljað loða við þennan fagra stað um vezlun- armannahelgina og er leitt til þess að vita. Ekki er nokkur vafi á því, að drykkjuskapur unglinga á útiskemmt- unum má að verulegu leyti rekja til þess að of lítið er á dagskrá fyrir ungl- ingana. Veðrinu má auðvitað oft kenna um þetta, þegar það kemur í veg fyrir framkvæmd dagskráratriða. Ef dag- skráin er glompótt eða fábreytt, kemur óeirð í áhorfendur, þeir taka að eigra um og oft leiðast eirðarlitlir unglingar út í vínneyzlu í slíkum leiðindum af því að þeir hafa ekkert fyrir stafni. Ef ólund er í veðrinu eykst eirðarleysið að sama skapi. Það er því mikil nauð- syn að vanda sem bezt til allra dag- Þegar útihátíðir eru í nánd, hópast unglingar kaupstað- anna að langterða- bílunum og er þá ott þröng á þingi, og mikil eftirvænting í fólki SKINFAXI 11

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.