Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1968, Side 18

Skinfaxi - 01.12.1968, Side 18
auka útbreiðslu blaðsins og bæta það að efni. Fundurinn hvetur öll ungmennafé- lög til að gera stórátak varðandi út- breiðslu Skinfaxa. I þessum tilgangi bendir fundurinn á sem fyrirmynd, — skipulag það sem nokkur ungmennafé- lög hafa þegar haft alllengi og gefið góða raun: Hvert ungmennafélag sjái um að einn áskrifandi verði á hverju heimili á félagssvæðinu, þar sem félagsmenn eru. Ef fleiri en einn ungmennafélagi er á heimili, er sent þangað aðeins eitt eintak, nema óskað sé fleiri. Askrifendalistinn skal sendur skrif- stofu UMFI, sem síðan annast send- ingu ritsins til einstakra áskrifenda. — Áskriftargjöld innheimtir hvert félag um leið og félagsgjöld, og gerir félagið upp við UMFl í einu lagi fyrir áskrif- endur. Þau félög, sem hafa haft þennan hátt á, hafa þó ekki innheimt full áskriftar- gjöld af áskrifendum heldur borga mis- muninn úr félagssjóði. Ef þetta skipulag yrði alls staðar upp tekið, myndi fjárhagsleg afkoma Skinfaxa vera vel tryggð, og jafnframt yrðu skapaðir möguleikar til að bæta blaðið efnislega, gera það f jölbreyttara og stærra. Landgræðsla Sextándi sambandsráðsfundur UMFÍ lýsir ánægju sinni yfir stórauknu land- græðslustarfi í sumar af hálfu ung- mennafélaganna í samráði við Land- græðslu ríkisins. Fundurinn þakkar þeim mörgu ungmennafélögum, sem að þessum málum hafa unnið af fórn- fýsi og lofsamlegum áhuga. Sérstak- lega þakkar fundurinn þeim Ingva Þor- 18 steínssyni og Ólafi Ásgeirssyni, sem af hálfu landgræðslunnar hafa skipulagt og haft forystu um landgræðsluferðir ungmennafélaganna. Þessir starfsmenn Landgræðslunnar hafa lýst yfir ánægju sinni og þakklæti vegna þátttöku ung- mennafélaganna í landgræðslustarfinu. Nú er fengin mikilsverð reynzla í landgræðslustörfum á vegum ung- mennafélagshreyfingarinnar og er því mikilvægt að draga af henni ályktanir og leggja drög að áætlun um land- græðslustarfið í framtíðinni. Fyrir því ályktar fundurinn eftirfar- andi: Héraðssamböndin og aðrir sam- bandsaðilar taki nú þegar til athugun- ar og ákvörðunar þátttöku sína í land- græðslustarfinu næsta sumar ákveði fjölda þátttakenda og hvort um eins eða tveggja daga ferðir verði að ræða. Æskilegt er einnig, að ungmennafé- lagar í hverju héraði velji sér land- græðslusvæði eða geri tillögur um þau. Slíkar tillögur eða ábendingar þurfa að berast stjórninni fyrir áramót, þannig að hægt verði að útvega áburð og ann- að, sem til þarf í tæka tíð. Æskilegt er einnig að fá upplýsingar um það hvort einhver hluti svæðisins sé vél- tækur. Fundurinn telur heppilegt og vel við- eigandi að sambandsaðilar geri sér fram kvæmdaáætlun í þessu máli eða setji sér takmark t. d. til 10 ára eða starf fram að íslandsbyggðarafmælinu árið 1974. Ef sáð er í foksvæði, þarf að hefja landgræðslustarfið með því að girða svæðið. Þegar uppræðslan er fullgerð eru slíkar girðingar teknar niður og e. t. v. settar annars staðar. Ungmennafélagar skulu alltaf hafa í SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.