Skinfaxi - 01.12.1968, Page 21
■
'
v.~
b*•- *i' *
Á Sauðárkróki verður 14. landsmót UMFÍ haldið sumarið 1971.
nefnd til að endurskoða og semja regl-
ur um íþróttakeppni og framkvæmd
landsmóts UMFl.
Nefndin fær til meðferðar álit
knattleikjanefndar og skili áliti til
UMFl fyrir 1. apríl n.k.
Sambandsstjórn UMFÍ sendi um-
ræddar tillögur til stjórna héraðssam-
bandanna til umsagnar, minnst mán-
uði fyrir næsta sambandsþing UMFl“.
I nefndina voru kosnir Guðjón Ingi-
mundarson, Kristján Ingólfsson og
Hafsteinn Þorvaldsson.
Þá var á fundinum kosin þriggja
manna knattleikjanefnd til að annast
undirbúning og framkvæmd knatt-
leikjakeppninnar á næsta landsmóti. I
nefndina voru kosnir þeir Sigurður
Helgason, Höskuldur Goði Karlsson og
Guðmundur Þórðarson.
Knattleikjanefndinni var falið eftir-
farandi verkefni samkvæmt samþykkt
kundarins:
„Þriggja manna knattleikjanefnd
UMFl, kosin á sambandsráðsfundi
UMFÍ 19. og 20. okt. 1968, er falið eft-
irfarandi verkefni:
Að undirbúa og skipuleggja for-
keppni og úrslitakeppni í knattleikum
14. landsmóts UMFÍ, og sjá um alla
framkvæmd keppninnar í samráði við
landsmótsnefnd og stjórn UMFl. —
Nefndin hefji starf sitt með því að
semja reglugerð um keppnina í öllum
atriðum. Þess skal sérstaklega gætt, að
reglurnar séu einnig nákvæmar og ó-
tvíræðar um sjálfa úrslitakeppnina, er
fram fer á næsta landsmóti.
Reglugerðin skal lögð fyrir sjórn
UMFÍ til staðfestingar fyrir 1. marz
n.k.“
SKINFAXI
21