Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1968, Page 29

Skinfaxi - 01.12.1968, Page 29
Hinn 10. febrúar sl. festi Héraðssambandið Skarphéðinn kaup á 140 ferm. fokheldri hæð í nýbyggðu húsi við Eyrarveg á Selfossi. — Húsnæði þetta er á mjög góðum stað við eina aðalgötu bæjarins. Skarphéðinsmenn hafa um árabil stefnt að því takmarki að eignast eigin húsnæði, sem yrði félagsleg miðstöð starfsemi ungmenna- félaganna á Suðurlandi. Eftir hið vel heppn- aða landsmót á Laugarvatni 1965, sáu Skarp- héðinsmenn að þetta takmark var í seilingar- færi. Á héraðsþinginu 1966 var ákveðið að verja tekjunum af landsmótinu ekki í rekst- urinn heldur nota þær til að kaupa húsnæði fyrir HSK. Á héraðsþinginu í janúar sl. var kosin 5 manna nefnd til að starfa með stjórn- inni að þessu máli. Héraðsstjórnin og hús- nefndin tóku þessa ákvörðun eftir nákvæma athugun á fáanlegu húsnæði, og þegar í stað var hafizt handa um að innrétta húsnæðið. Það er mikið verk og kostnaðarsamt, en Skarphéðinsmenn gera sér vonir um að geta tekið húsnæðið í notkun, fullbúið, í febrúar- mánuði n. k., aðeins ári eftir að það var keypt í fokheldu ástandi. K Myndirnar, sem hér fylgja með, voru teknar á sl. vetri eftir að H. S. K. keypti húsið. — Á annarri myndinni sést húsið, en HSK keypti efstu hæð- ina. Á hinni mynd- ini sjást forystu- menn Skarphéðins virða fyrir sér hús- næðið og leggja á ráðin um frekari aðgerðir. SKINFAXI 29

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.