Skinfaxi - 01.06.1974, Blaðsíða 7
Þátttakendur í fram-
kvæmdastjóranám-
skeiðinu ásamt for-
ystumönnum UMFÍ
skoðuðu landsmóts-
svæðið og íþróttamann-
virki á Akranesi í boði
heimamanna þar.
Myndin er tekin við
það tækifæri. Talið frá
vinstri, sitjandi:
Sigurður Geirdal og
Sólveig S. Sveinbjörns-
dóttir (UMSK).
Standandi fremst:
Níels Á. Lund (UNÞ)
og Guðmundur Guð-
mundsson (HSK). Standandi aftar: Hafsteinn Þorvaldsson, Gylfi ísaksson bæjarstjóri, Arn-
aldur M. Bjarnason (HSÞ), Jón B. Stefánsson (UÍA), Ingimundur Ingimundarson (HSH),
Garðar Óskarsson (Umf. Skipaskaga), Sigurður R. Guðmundsson og Jóhannes Ingibjarts-
on byggingafulltrúi Akraness.
ur er þegar hafinn og er aðstaða mjög
glæsileg. í lok kynnisferðar um Akranes
bauð bæjarstjóri til kaffidrykkju á Hótel
Akranesi, þar sem rætt var nánar um
undirbúning Landsmótsins.
Á námskeiðinu voru flutt nokkur er-
indi. Reynir Karlsson æskulýðsfulltrúi
ríkisins fjallaði um fræðslumál, Valdimar
Óskarsson um skipulagsmál, Hafsteinn
Þorvaldsson um stjórnun hreyfingarinn-
ar, Jóhannes Sæmundsson um menntun
þjálfara og Sigurður R. Guðinundsson
um ungmennabúðir. Voru öl! erindin
vfirgripsmikil og greinargóð.
Mikil ánægja ríkti meðal þátttakenda
að Ungmennafélag íslands hefði gefið
þeim tækifæri að sækja slíkt námskeið og
töldu allir að árangur námskeiðsins væri
góður og mikill fengur væri í þeim upp-
lýsingum sem þar komu fram.
Samtök framkvæmdastjóranna
í lok námskeiðsins stofnuðu þáttakend-
ur með sér félag framkvæmdastjóra ung-
mennafélaganna. Samþykkt voru bráða-
birgðalög og kosin stjórn til frekari und-
irbúnings.
Kosnir voru:
Guðmundur Gíslason UMFÍ form.,
Guðmundur Guðmundsson HSK ritari,
Ingimundur Ingimundarson HSH gjald-
keri.
Áformað er að halda framhaldsnám-
skeið í haust samkvæmt beiðni þátttak-
enda og verði þá gerð úttekt á sumar-
starfinu og rætt um starfsþætti vetrar-
mánaðanna.
Með þessu námskeiði má ætla að skap-
ast hafi samhentur hópur mikilvirkra
manna sem hver um sig mun vinna
hreyfingunni ómetanlegt gagn.
SKINFAXI
7