Skinfaxi - 01.06.1974, Blaðsíða 25
anskar listar og lét mig reka um hið
ólgandi mannhaf borgarinnar. I mollu-
legu kvöldrökkrinu birtast nokkrir kunn-
uglegir svipir, óvæntir samferðamenn, en
ótrúlega nákomnir manni á þessum stað
enda erum við hér allir jafnfjarri heima-
byggðinni. Þeir stika stórum og hafa allir
öxi reidda, einkennisvopn væringjans, og
þrístrenda skildi. Þar fer fremstur þung-
brýnn maður og hraustlegur með ægilegt
ör í andliti: Halldór Snorrason. Honum
fylgja þeir frændur Bolli hinn prúði
Bollason og Úlfur Óspaksson. Óham-
ingjusamur útlagi, Kolskeggur frá Hlíð-
arenda, veitir manni hér einnig fylgd og
þá ekki síður hinn hugþekki ævintýra-
maður Þorsteinn drómundur, bróðir
Grettis. Allir þeir og margir fleiri eru í
augum íslendings hluti af þessum stað
og varðmenn íslenskrar sögu.
En þessari grein verður að ljúka ekki
síður en skemmtigöngu um fortíð og nú-
tíð í Miklagarði. Hér hef ég þó aðeins
tæpt á þeim málum sem ég gjarnan hefði
viljað skrifa um stóran doðrant til að
kvitta fyrir ferðina til Tyrklands.
Eysteinn Þorvaldsson.
Héraðsþing
HVÍ 1974
60. Héraðsþing HVÍ var haldið að
Holti í Önundarfirði 21. apríl. Bergur
Torfason setti þingið og bauð fulltrúa vel-
komna til þingsins og gat þess að bæði
fo: maður og varaformaður HVÍ væru
burtfluttir af félagssvæðinu og hefði
hann hlaupið í skarðið við setningu
þingsins. Síðan tilnefndi hann Helga
Gunnarsson þingforseta og Ástvald Guð-
mundsson þingritara. Þingsókn var góð
og áttu öll félögin fulltrúa á þinginu
nema íþr.fél. Höfrungur, Þingeyri.
Á þingið mætti einnig Hendrik Tausen
formaður Þjóðháíðar- og landsmóts-
nefndar HVÍ. Skýrslu stjórnar flutti Jón
Guðjónsson, og Guðmundur Steinar
Björgmundsson flutti skýrslu gjaldkera.
Bergur Torfason greindi frá starfi fé-
langanna.
Á þinginu voru gerðar margar sam-
þykktir fyrir stjórn og félögin að vinna
eftir.
Var m. a. fjallað um neyslu ávanaefna,
samkomuhald, félagsmálfræðslu, héraðs-
þing, íþróttaiðkun og íþróttakeppnir,
ráðningu framkvæmdastjóra og fjárhags-
áætlun.
Núverandi stjórn skipa: Formaður Jón
Guðjónsson Veðraiá, gjaldkeri Bergur
Torfason Felli, ritari og Guðmundur
Steinar Björgmundsson Kirkjubóli.
SKINFAXI
25