Skinfaxi - 01.06.1974, Blaðsíða 30
með varðskipi milli fjarða. Þróttur fór
með snjóbíl yfir Oddskarð og með varð-
skipi fyrir nes og svo fótgangandi lang-
leiðina yfir Oddskarð. Austri þurfti snjó-
bíl yfir Oddskarð og einnig þurftu tveir
menn Austra að ganga yfir Oddskarð til
að dæma leik á Neskaupsstað. Þetta sýn-
ir best áhugann hjá þessum félögum þvi
alltaf þurftu mennirnir að eyða löngum
tíma í ferðalög. Þetta er ákaflega kostn-
aðarsamt og erfitt i framkvæmd. en allir
eru reiðubúnir i slaginn aftur næsta vet-
ur. Handboltakeppninni lyktaði þannig
að Þróttur bar sigur úr býtum eftir mikil
átök. Mótið var ákaflega grófi; og þóf-
kennt og skapaðist það mikið af skorti
á hæfum dómurum.
Frá öðrum atburðum vetrarins er það
helst að segja að ÍR heimsótti UÍA með
meistaraflokkslið (1. deild) í körfuknatt-
leik og sigraði sambandsliðið sem von var
en heimsóknin var ákaflega ánægjuleg
fyrir báða aðila. Dómaranámskeið var
haldið í tengslum við þessa heimsókn en
það var bæði stutt og þátttakendur nokk-
uð ungir og nýttust ekki til starfa. Má
þar einnig kenna um, að þeir fengu ekki
skírteni sín um þennan áfanga.
Austurlandsmót í körfuknattelik fór
einnig fram á Eskifirði og sigraði Umf.
Eiðaskóla.
Austurlandsmótið á skiðum var haldið
á Neskaupsstað og sigraði Þróttur í stiga-
keppni.
íþróttir fyrir kvenfólk hafa þvi miður
verið vamæktar um langt skeið, og er
það mjög slæmt. Er vonandi að úr því
verði bætt sem allra fyrst. Sömu sögu er
reyndar að segja um alla yngri flokka
að þeim hefur ekki verið sinnt nægilega
mikið. íþróttalif sumarsins er hafið af
fullum krafti og er það ávallt mun auð-
veldara viðfangs og fjölbreyttara.
UÍA stefnir að því að koma með góðan
hóp íþróttamanna á 15. landsmót UMFÍ
sem fram fer á Akranesi sumarið 1975,
og er það eitt ákaflega stórt verkefni sem
Austfjarðarfélögin eru sammála um að
reyna að leysa sem best af hendi.
(Frá UÍA)
Ársþing
HSS 1974
Ársþing HSS var haldið á Hólmavík
23. júní 1974. Ingimar Elíasson formaður
HSS setti þingið og bauð fulltrúa vel-
komna til þings.
Á þingið mætti öll framkvæmdastjórn
UMFÍ, Hafsteinn Þorvaldsson formaður,
Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri og
Guðmundur Gíslason. Lögð var fram
skýrsla og reikningar síðasta starfsárs.
Á síðasta ári var við nokkra fjárhags-
örðugleika að etja vegna mikilla um-
svifa. Hefur af þessum sökuin nokkuð
verið dregið úr starfseminni en bjart-
sýni er ríkjandi og er þvi ástæða til að
ætla að starfið muni vaxa verulega á
komandi starfsári reynist unt að afla
aukinna tekna.
Stjórn HSS skipa nú: Formaður Pálmi
Sigurðsson Klúku Bjarnafirði, varafor-
maður Þorbjörn Bjarnason Lyngholti,
gjaldkeri Marías Kárason Hólmavík,
meðstjórnandi Gunnlaugur Bjarnason
Hólmavík og ritari Gunnvör Björnsdóttir
Klúkuskóla.
30
SKINFAXI