Skinfaxi - 01.06.1974, Síða 11
Héraðsþing
UNÞ 1974
Jóhannes leiðbeinir ungum strákum á æf-
ingu hjá UMFG.
— Hún verður að teljast góð. í vetur
skráðu sig um 80 til æfinga, og um 50
hafa æft nokkurn veginn reglulega all-
an veturinn, en æfingar eru þrisvar í
viku. Það má geta þess að stúlkur bvrj-
uðu að æfa á ný í vetur eftir nokkurt
hlé.
Þess má að lokum geta að öll þjálfara-
störf Jóhannesar hafa verið ólaunuð, og
°taldar eru þær ferðir sem hann hefur
farið með nemendur sína til keppni og
samæfinga á vegum JSÍ bæði til Revkja-
víkur og Njarðvíkur.
Héraðsþing UNÞ var haldið á Raufar-
höfn 23. júní og hófst kl. 10 árdegis. Aðal-
björn Gunnlaugsson Lundi Öxarfirði for-
maður UNÞ setti þingið og bauð fulltrúa
velkomna. Þingið sátu um 20 fulltrúar frá
félögum UNÞ, einnig mætti Guðmundur
Gislason úr framkvæmdastjórn UMFÍ á
þingið. Forseti þingsins var Þorsteinn
Hallsson frá Raufarhöfn. Á þinginu var
mikið rætt um starf Ungmennasam-
bandsins og margar samþykktir gerðar
um starf komandi árs. Nú hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri yfir
sumarmánuðina. Er það Níels Á. Lund
kennari, en Níels er þaukunnugur mál-
efnum og staðháttum í héraðinu og hef-
ur verið mikilvirkur í starfi hreyfingar-
innar undanfarin ár. Á þinginu voru
samþykkt ný lög UNÞ. og eru helstu ný-
mæli þau að nú skipa 3 menn stjórn
sambandsins auk þriggja varamanna.
Skal kjósa um 1 aðalmann og vara-
mann hans árlega úr hópi kjörmanna
sem kosnir eru tveir á aðalfundi hvers
félags.
Núverandi stjórn UNÞ skipa: Formað-
ur Aðalbjörn Gunnlaugsson Lundi Öxar-
firði, gjaldkeri Guðmundur Þórarinsson
Vogum Kelduhverfi og ritari Stefán
Eggertsson Laxárdal Þistilfirði.
Á þinginu sæmdi Guðmundur Gíslason
Brynjar Halldórsson starfsmerki UMFÍ
fyrir mikið og gott starf í þágu æskufólks
í Norður-Þingeyjasýslu um langt ára-
bil en Brynjar hefur lengi verið í foustu-
sveit sambandsins og starfar enn af full-
um krafti. Allan undirbúning fyrir þetta
þing var reynt að vanda sem frekast var
kostur.
skinfaxi
11