Skinfaxi - 01.06.1974, Page 16
VANDAMÁL ÞRÓUNAR
OG VORDAGAR í MIKLAGARÐI
CENYC, Æskulýðsráð Evrópu, gekkst
fyrir umræðiifundi eða semínari um þró-
unarmál ásamt tyrkneska æskulýðssam-
bandinu, TMGT, í Istanbul dagana 23.—
29. apríl. Þátttakendur voru 25 frá 12
Evrópulöndum auk stjórnenda frá
CENYC og gesta frá Asíu og Afríku.
UMFÍ gafst kostur á að senda fulltrúa
á þetta semínar af hálfu Æskulýðssam-
bands íslands, en undirritaður fór þessa
ferð í forföllum annars sem valinn hafði
verið.
Þróun og vanþróun eru hugtök sem
alltof margir íslendingar leiða hjá sér
í því allsnægtaþjóðfélagi sem við búum
í. Við höfum verið býsna fljótir að glevma
því að það eru ekki margir áratugir síðan
við vorum eitt af hinum yanþróuðu lönd-
um þar sem skortur og fáfræði takmarka
allan framgang. Varla fer það samt fram
hjá neinum hugsandi manni að þróunar-
málin em stærsta vandamál þeirra fjöl-
skyldu sem við köllum mannkyn og bygg-
ir reikistjörnuna Jörð. Meirihluti jarðar-
búa býr við næringarskort, hungur, drep-
sóttir, fáfræði og vonleysi meðan minni
hlutinn lifir í óhófi og hugsar fyrst og
fremst um það hvernig hann geti aukið
eigin lífsþægindi. Þess vegna varða þró-
unarmálin allar þjóðir, alla menn, ekki
síður þá vel stæðu en hina sem verða
hungurmorða þúsundum saman dag
hvern á hungursvæðum heimsins. Þrátt
fyrir miklar tækniframfarir og aukinn
hagvöxt, er bilið milli ríkra og fátækra,
— vanþróaðra og þróaðra ríkja alltaf að
breikka.
Um þessa óhugnanlegu staðrevnd
fjallaði CENYC-fundurinn í Istanbul.
Rætt var um viðhorfm til tengsla þróun-
ar og vanþróunar í heiminum og leitast
við að skilgreina hina ýmsu þætti þróun-
armála. Þetta var fræðilegt semínar fvrst
og fremst, grundvallað á sjálfstæðum
fyrirlestrum og umræðum. Mjög væri
æskilegt að eitthvað af efni fundarins
kæmi fyrir augu íslenskra lesenda, en
Skinfaxi hefur ekki rými til að gera slíku
skil í smáatriðum. Óskandi væri að ÆSÍ
gæti gert þessum málum betri skil á
almennum vettvangi á íslandi.
Fyrirlestrarnir á semínarinu voru fimm
16
SKINFAXI