Skinfaxi - 01.06.1974, Side 23
rómverska ríkið leið undir lok. Engin
furða er þó að frægð þessa staðar bærist
langar leiðir á miðöldum og að Islending-
ar sæktu þangað því að þeir voru heims-
borgarar á sína vísu á þeirri tíð. Það
var rökrétt hjá væringjum að nefna stað-
inn Miklagarð því að þetta var lang-
stærsta borg álfunnar á miðöldum, íbúar
um ein milljón og borgarlífið stórbrotið.
Þarna voru mörg veglegustu mannvirki
heims og tilkomumikil iistaverk, íburðar-
miklar skemmtanir og þarna loguðu hka
götuljósker um nætur. I íslenskum heim-
ildum (Morkinskinnu) er nákvæm lýsing
á hinu mikla útihringleikasvæði, Hippo-
dromos, sem hét Paðreimur í munni vær-
ingja.
Salómon, ég hef sigrað þig!
Gamli borgarhlutinn í Istanbul er
auðvitað langforvitnilegastur. Þar risa
sjö hæðir eins og í Róm, og á 'hverri
þeirra stendur moska, bænahús múham-
eðstrúarmanna, sumar æfagamlar. Lang-
merkust þeirra er Hagia Sofia eða Ægisif
eins og hún heitir í fornum bókum ís-
lenskum. Það er blátt áfram ótrúlegt að
mannleg verktækni og byggingarlist skuli
hafa verið þ ess megnug að reisa þessa
töfrahöll þegar á 6. öld. Ægisif var reist
sem kristin kirkja á veldisdögum Jústíní-
anusar keisara, en tumspírurnar eru auð-
vitað viðbót múhameðstrúarmanna sem
kölkuðu vfir allt skraut kirkjunnar og
breyttu henni í mosku.
Þegar maður stendur inni í helgidómn-
um undir hinni miklu hvelfingu, hlýtur
maður að fyllast undrun og hrifningu
yfir þessu undraverða mannvirki. Hér
er furðulega hátt til lofts og vítt til
á
Þar sem Paðreimur var áður standa nú þess-
ar súlur. Obeliskinn nær á myndinni var
fluttur frá Egyptalandi árið 390 og er þak-
inn myndletri, 25 m hár. Hin súlan var
áður skreytt guli-mósaukmyndum, en kross-
fararnir rændu hana öllu gulli og öðru
skrauti.
veggja. Aðalsalurinn er 70x75,5 metrar,
og hæðin upp í hvelfinguna er 65 metrar.
Þegar Jústíníanus mikli gekk inn í þetta
dýrðarinnar hús fullbúið á vígsludaginn
í desember árið 563, á hann að hafa
hrópað: „Salómon, ég hef sigrað þig“, og
víst hefur það til sanns vegar mátt færa
því að aldrei hafði annað eins töframust-
eri verið reist. íslenskur ferðalangur sér
í huga sér forfeður sína, væringjana úr
lágreistum torfbæjum norðurhjarans,
koma í þessa undrahöll sem á þeirra dög-
um var alskreytt risastórum mósaikmvnd-
skinfaxi
23