Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1974, Page 27

Skinfaxi - 01.06.1974, Page 27
RÆTT V:Ð FRAMKV/íMDASTJORA umsk EKKI SÍÐUR KVENNA STARF EN KARLA Sólvcig S. Sveinbjörnsdóttir Sólveig Sveina Sveinbjömsdóttir gegn- ir starfi framkvæmdastjóra UMSK og er fyrsta konan sem gegnir slíku starfi á vetvangi Ungmennafélagann hér á landi. — Hvað er langt síðan þú tókst við starfi framkvæmdastjóra UMSK? — Ég hóf starf hjá UMSK í byrjun apríl í ár. — Ertu bjarsýn á framtíð kvenna í starfi sem þínu? — Já, alveg tvímælalaust. Ég tel þetta starf alls ekki síður kvenna en karla verk, og í þvi felast jafnvel ýmsir þættir sem konum er ekki síður lagið að vinna heldur en körlum. — Hvenær kynntist þú hreyfingunni? — Ég kynntist henni á mínum æsku- stöðvum. Ég er fædd og uppalin í Garða- hreppi og hóf þátttöku í starfi Umf. Stjörnunnar í Garðahreppi 12 ára. 15-16 ára tók ég þátt í stjómarstörfum hjá Stjörnunni en síðan hef ég starfað í íþróttafél. Gerplu í Kópavogi. — Hvað hefur þú tekið þátt í íþrótt- um? — Ég byrjaði á handbolta og frjáls- um íþróttum, en síðan hef ég lagt mesta áherslu á borðtennis. — Þú ert íslandsmeistari í einliðaleik og tvíliðaleik í borðtennis er það ekki rétt? — Jú það á víst að heita svo, en ég geri mér grein fyrir að baráttan á eftir að harðna í borðtennis með aukinni þátt- töku og tæknilegri þjálfun. Það verður því ekki auðvelt að halda þessari stöðu í íslandsmóti. — Hefur þú undirbúið þig fyrir starf þitt í 'hreyfingunni? — Ekki hafði ég nú beinlínis hugsað um það, en ég átti þess kost að stunda nám í Lýðskóladeild íþróttaskóla Sigurð- ar R. Guðmundssonar sumarið 1973. Ég sé það núna að ég hef notið góðs af veru minni í Leirárskóla, því þar kynnt- ist ég öllum íþróttagreinum sem stundað- ar eru hér á landi auk þess sem ég fékk greinargóða fræðslu um skipulag íþrótta og æskulýðshreyfingar á íslandi. Einnig var efnt til námskeiðs í félagsmálafræð- SKINFAXI 27

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.