Skinfaxi - 01.12.1976, Síða 17
— Er mikill íþróttaáhugi í hérað-
inu?
— Hann hefur almennt verið með
daufara móti undanfarið. Samt hefur
verið talsverð íþróttastarfsemi hjá fé-
lögunum en mest þó í skólunum. Þess
skal þó getið að við áttum tvo lands-
liðsmenn í frjálsum íþróttum í sumar,
og það er til mjög efnilegt íþróttafólk
í héraðinu. T.d. setti Þorsteinn Þórs-
son ísl. sveinamet í hástökki í haust —
1,89 m og 3. flokkur Umf. Tindastóls
í körfuknattleik vann íslandsmeist-
aratitil í þeim flokki á þessu ári.
— Hvernig er aðstaðan til íþrótta-
iðkana í héraðinu?
— Á Sauðárkróki eru góðir íþrótta-
vellir til útiiþrótta en ekki annars
staðar í héraðinu. Félagsheimilin á
Hofsósi og i Varmahlið eru notuð fyrir
íþróttakennslu skólanna. Á Sauðár-
króki er aðeins mjög lítili íþróttasalur,
og körfuboltapiltarnir verða að leika
heimaleiki sína á Akureyri. Knatt-
Gestur
Þorsteinsson
form. XJMSS í
fullum skrúða
við að stjórna
héraðsmóti
UMSS í sumar.
Hluti af sundfólki Umf. Tindastóls sem sigraði
á héraðsmóti UMSS í sundi, ásamt þjálfara
sínum Þorbirni Árnasyni (með gleraugu).
Fremst t.h. er Birgir Friðriksson með Grettis-
bikarinn sem veittur er fyrir 500 m. frjálsa
aðferð, og fremst í miðju er Ingibjörg Guð-
jónsdóttir sem hlaut flest stig einstaklinga
á mótinu.
spyrnuáhugi er alltaf góður á sumrin.
Sundaðstaða er góð í héraðinu, og
skagfirðingar hafa oft átt gott sund-
fólk, en undanfarið hefur verið fátt
um afrek á því sviði, en vonandi stend-
ur það til bóta.
Við væntum þess líka að skíðaíþrótt-
in eigi góðu gengi að fagna hér í fram-
tíðinni, því að skíðalyfta verður bráð-
lega sett upp í Gönguskörðum fyrir
norðan Sauðárkrók. Lyftan er gjöf frá
Lions-klúbbnum til Umf. Tindastóls.
Þarna eru góð skilyrði til skíðaiðkana.
Fljótamenn eru löngu landsfrægir
fyrir að hafa átt bestu skíðagöngu-
menn landsins um árabil, og nú vonum
við að fleiri skíðagreinar fylgi í kjöl-
farið.
SKINFAXI
17