Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1980, Page 4

Skinfaxi - 01.06.1980, Page 4
Frá þingi UMSS. Páll Ragnarsson í ræðustól. 60. þing UMSS var haldið að Höfðaborg á Hofsósi sunnudag- inn 30. mars, og var þetta tíma- mótaþing þar sem UMSS var stofnað 17. apríl 1910 og er því 70 ára á þessu ári. Af hálfu UMFÍ sátu þingið þeir Pálmi Gíslason og Sig. Geirdal, auk þess sem Guðjón Ingimundarson sem er heiðursfélagi i UMSS sat þingið. Vel var mætt á þetta þing hjá Skagfirðingum og sátu það full- trúar frá 11 félögum af 13. Formaður UMSS Jóhann Jak- obsson flutti skýrslu stjórnar sem lá fjölrituð fyrir þinginu og bar hún með sér mikið starf hinna einstöku félaga innan UMSS og einnig hefur samband- ið fengist við ýmis verkefni og ber þar hæst íþróttastarfið. Jó- hann Jakobsson form. UMSS gaf ekki kost á sér til endurkjörs í formennsku og var Hörður Jónsson kosinn formaður í hans stað. Að þinginu loknu var efnt til 70 ára afmælisfagnaðar. Guðjón Ingimundarson flutti aðalræðu kvöldsins, en Pálmi Gíslason form. UMFÍ flutti ávarp og færði UMSS gjöf frá UMFÍ í til- efni afmælisins. Sæmdir starfs- merki UMFÍ voru þeir Stefán Guðmundsson, Páll Ragnarsson og Helgi Rafn Traustason. Þá voru þrír menn gerðir að heið- ursfélögum UMSS, þeir Halldór Benediktsson Fjalli, Sigurður Jónsson Reynistað og Árni M. Jónsson Sauðárkróki. 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.