Skinfaxi - 01.06.1980, Blaðsíða 25
Vi fS fli aþ mt tu !'I 1*
C A V A
Það virðist greinilegt að Luðvig Eggertson: Dmllinn nkkur leovi li Fáum leikur iétt á tungu, liÍKÍns snilli vknnoinr/i.
suma til að koma botnum
sínum á framfæri. Þannig
bárust okkur allmargir ágæt-
ir botnar við fyrstu fyrri
partana eftir að blað númer
tvö var farið i prentun. Að
vísu finnst mér sjálfum það
tæpast vera verk sem telja
þurfi í vikum að snara
saman tveim, þrem botnum,
ef menn á annað borð geta
það.
Þar sem botnarnir voru
margir ágætir finnst mér að
þið þurfið að fá að sjá þá.
Fyrsti fyrri parturinn:
Strax í byrjun vonum við,
að vísnaþáttinn styðjið þið.
Og hér koma nýju botn-
arnir:
J.S. Dalvík:
Og með botninn — utan við,
örvið góðan þjóðarsið.
S.:
Góðir þættir gcfast best,
gott er að vcðja á rcttan hcst.
Svava Ólafsd.:
Helst og fremst ég um það bið,
að á þcim verði islenskt snið.
Óncfndur:
Að yrkja vísu er íþrótt góð,
og ekki komin ncitt tir móð.
I.J. Svanhóli:
En baglið alltaf bagar mig
og bragleysan mun særa þig.
og láti okkur scmja frið.
Og þá eru hér nokkrir
botnar við annan fyrri part-
inn sem var svona:
Bragfræðin ei bregðast má,
né botna fjöldi góður.
Ónefndur botnar:
Skinfaxi þinn skulu þá,
skáldin auka hróður.
I.J. Svanhóli:
Snillitökum slakar á
stafkarl vegamóður.
B.:
Botnar fljúga byggðum frá,
best er andlcgt fóður.
Þórður Jónsson:
Mig dreymir að komi
dáfallcgur hróður.
í dagsljós þá,
J.S. Dalvík:
Þegar í kappi kveðast á,
karlar og hringatróður.
Einn botn fengum við svo
í viðbót við síðasta fyrripart-
inn, frá J.S. Dalvik:
Leit ég unga lipur-tá,
lömuð tungan þagði.
Ei má sprundið yrða á
undirvitund sagði.
Við fyrripartana í síðasta
blaði var aðeins komið eitt
svar, frá Jóni F. Hjartar og
hann leggur auk þess til að
Vísnaþátturinn verði stækk-
aður í tvær síður. Ég læt hér
koma vísurnar þrjár eins og
þær líta út frá Jóni.
Þetta aldnir ungum sungu,
alla daga á byggðri jörð.
Ungur fyrrum átti spor,
út um grundir dala.
Átti í huga eilíft vor,
ánum við að smala.
Unaðsstundir áður man,
ég í lundum Þrastaskúgar.
Þar á grundum þrýtur flan,
þögnin undir björtum róar.
Ég held að rétt sé að bíða
eftir fleiri botnum við þessa
fyrriparta áður en ég set
nýja á blað, og eins megið
þið sjálf koma með fyrri-
parta í blaðið.
Talsvert kemur af botn-
um, sem út af fyrir sig lýsa
nokkuð góðum hugmyndum,
en standast ekki bragfræði-
Iega, hins vegar eru þetta oft
smá villur sem þið gætuð ef-
laust Iosnað við með örlítið
meiri vandvirkni.
Við höfum fengið botna
og kveðjur víða að af land-
inu og raunar úr öllum
fjórðungum nema af Vest-
fjörðum. Ég hefði gaman
af, að vita hvort þetta er
einhver andleg deyfð eða al-
gjör skortur á hagyrðingum
á þessu svæði.
Efni í næsta blað þarf að
berast fyrir 25. júlí.
Með kveðju.
Ásgrímur Gíslason.
SKINFAXI
25