Skinfaxi - 01.06.1980, Blaðsíða 23
HSK —
körfuknattleikur
kvenna
Fyrsta HSK móti kvenna í körfuknattleik er
lokið og varð Mímir, sem er félagslið Mennta-
skólans að Laugarvatni, sigurvegari í mótinu. í
öðru sæti varð Umf. Biskupstungna, í þriðja
sæti Umf. Laugdæla og lestina rak Umf. Ing-
ólfur.
Úrslit leikja urðu þessi:
1) UMFB—UMFL 32—26
2) UMFL—Umf. Ingólfur 15— 2
3) UMFL—Mímir 16—29
4) Mímir—UMFB 32—17
5) Umf. Ingólfur—Mímir 20—38
6) UMFB—Umf. Ingólfur Umf. Ingólfur gaf
Röð liða að móti loknu varð þessi:
1) Mímir með 6 stig
2) UMFB með 4 stig
3) UMFL með 2 stig
4) Umf. Ingólfur með 0 stig
Lið Mímis hlaut því fullt hús stiga sem er frá-
bær árangur.
Fyrirliði Mímis varð stigahæsti leikmaður
mótsins með 50 stig, en röð stigahæstu manna
varð þessi:
1) Eygló Ingólfsdóttir Mímir 50 stig
2) Dýrleif Guðjónsdóttir Mimir 31 stig
3) Unnur Óskarsdóttir UMFL 30 stig
4) Bryndís Róbertsdóttir UMFB 25 stig
5) Margrét Sverrisdóttir UMFB 20 stig
Bikarinn sem keppt er um er farandbikar en
vinnst til eignar með sigri sama liðsins þrjú ár í
röð.
HSK-meistarar kvcnna í körfuknattleik 1979—1980. Mimir.
Kfri röð frá vinstri Hannes Birgir Hjálmarsson, Þjálfari, Dýrleif Guðjönsdöttir, Kristrún Ágústsdóttir, Soffia Rósa Gests-
dóttir, Kristín Gísladóttir. Neðri röð frá vinstri: Birna .1. Ólafsdóttir, F.ygló lngólfsdóttir fyrirliði, F.rla Gunnarsdóttir. G.
Svandís Sigvaldadóttir.
I.jósmynd: B.Ó.M.
SKINFAXI
23