Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1980, Side 6

Skinfaxi - 01.06.1980, Side 6
T ússon, flutti skýrslu stjórnar og rakti helstu þætti í starfi HSH s.l. starfsár. Nokkuð ber á lægð í starfi HSH um þessar mundir og var þingið fremur fámennt. Rætt var um þörf á félagsmálafræðslu og útbreiðslustarfi á svæðinu. Starf HSH á íþróttasviðinu var þó ágætt á árinu og var Hreinn Jónasson kjörinn íþróttamaður HSH 1979. Þá hafa verið unnar af þeim Hrefnu Markan og Pálma Frí- mannssyni metaskrár HSH í sundi og frjálsum íþróttum, enda hefur heimildaskráning hjá HSH verið góð á undanförnum árum. Gylfi Magnússon var end- urkjörinn formaður HSH. Héraðssambandið Hrafna- flóki hefur haft hægt um sig undanfarin ár, en okkur hafa borist þær ánægjulegu fréttir að sambandið hafi nú verið endur- reist og bjartari tímar séu þar framundan. 15. maí var haldið þing HHF og voru þar mættir fulltrúar frá öllum félögum á svæðinu; Herði Patreksfirði, Umf. Barðstrend- Frá þingi UÍÓ. Frá þin(>i UÍÓ. inga, Umf. Tálknafjarðar og íþr.fél. Bíldudals. Lög sam- bandsins hafa verið endurskoð- uð, og ýmsar breytingar gerðar einkum hvað varðar skipulags- mál, sett inn ákvæði um for- mannafundi tvisvar á ári o.s.frv. Hin nýja stjórn HHF er þannig skipuð: Form. Sigurður Viggósson, Herði. Ritari Heiðar Jóhannsson, Tálknafirði. Gjaldkeri Ivar Ragnarsson, Umf. Barðstrcndinga. Fyrsti varam. Ólafur Högnason, Bíldudal. Fulltrúar frá UMFÍ voru ekki á þessu þingi, en senda HHF og stjórn þess bestu óskir um vel- gengni í starfi. UÍÓ hélt þing sitt Iaugardag- inn 19. apríl og voru þar mættir af hálfu UMFÍ Pálmi, Sigurður og Þóroddur Jóhannsson. Magnús Stefánsson form. UÍÓ flutti skýrslu stjórnar og kom glöggt fram i henni að UÍÓ er í mikilli sókn, enda var þingið vel sótt og bjartgýni ríkjandi. Af ýmsu var að státa í starfinu en þar bar þó hæst árangurinn í skíðaíþróttinni. Form. UMFÍ af- henti UÍÓ bikar að gjöf frá UMFÍ til að ráðstafa sem best þeim þætti og átti þetta að vera viðurkenning tl UÍÓ fyrir gott starf að málefnum og mótum skíðamanna, enda var frammi- staða Ólafsfirðinga með miklum glæsibrag á siðasta skíðalands- móti. Vel hafði verið unnið að undirbúningi göngudagsins í Ólafsfirði, og einnig er unnið að þátttöku í 17. Landsmótinu, þá er starfsemi Golfklúbbsins • blóma. Magnús Stefánsson var endurkjörinn formaður UÍó. 6 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.