Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1980, Page 8

Skinfaxi - 01.06.1980, Page 8
Jens Sumarlidason varaformaöur KSt. Frá Knattspyrnusambandi íslands KNATT SPYRNA Fyrsti opinberi knattspyrnuleikurinn háður á hátíð ungmennafélaganna 1911 Þegar þetta viðtal var tekið var formaður KSÍ staddur erlendis og við snerum okkur því til varaformannsins Jens Sumarliðasonar til að fá upplýsingar um Knattspyrnusambandið og störf þess. Jens brást vel við og leysti greiðiega úr spurningum okkar. Hvenær var KSÍ stofnað? Knattspyrnusamband íslands var stofnað 26. mars 1947. En áður hafði knattspyrnuráð Reykjavíkur farið með mál knattspyrnunnar undir yfirstjórn ÍSÍ. Talið er að iþróttin hafi bor- ist hingað til lands með skoskum manni, að nafi Ferguson, um 1895. Það er skemmtilegt að geta þess hér að fyrsti opinberi knatt- spyrnuleikurinn var háður árið 1911 milli KR og Fram og fór sá leikur fram á hátið sem ung- mennafélögin í landinu efndu til á 100 ára afmæli Jóns Sigurðs- sonar. Hvernig er uppbygging KSÍ? Eins og segir í lögum KSÍ þá er það samband sérráða, héraðs- sambanda og íþróttabandalaga sem iðka og keppa í knatt- spyrnu. KSÍ er æðsti aðili um öll knattspyrnumál innan vébanda ÍSÍ. KSÍ vinnur að eflingu knatt- spyrnunnar í landinu og sér um öll samskipti við erlenda aðila og er aðili að alþjóða knattspyrnu- sambandinu (FIFA) og Knatt- spyrnusambandi Evrópu (UEFA). Þá er haldið uppi mjög nánu sambandi við Norðurlönd. Aðalstjórn KSÍ er skipuð 11 mönnum og þar af eru 7 í fram- kvæmdastjórn. Fastanefndir eru: Landsliðsnefnd, móta- nefnd, unglinganefnd, aga- nefnd, tækninefnd og dómara- nefnd. Nefndirnar hafa nokkuð sjálfstæða starfsemi hver á sínu sviði en stærri ákvarðanir eru að sjálfsögðu teknar af stjórninni. í ár er starfsmannahald hjá KSÍ þannig, að starfandi er landsliðs- þjálfari, unglingalandsliðsþjálf- ari, einn starfmaður í fullu starfi og annar í hálfu starfi yfir anna- mesta tima ársins. Aðsetur KSÍ er á efstu hæð í öðru skrifstofu- húsinu í Laugardal en sú hæð er í eigu KSÍ. Nú er KSi mjög stórt samband. Þarf ekki mikið að sinna útbreiðslu- og fræðslu- málum? Fyrst og fren\st er útbreiðslu- starf KSÍ byggt upp á því að kynna íþróttina yngstu þátttak endunum. Nú í ár er einmitt í gangi slík herferð en unglinga- og tækninefnd gáfu í sameinigu út bækling á síðasta hausti með knattþrautum úti og inni, minni- knattspyrnuleikjum og reglum. Tækninefnd heldur reglulega þjálfaranámskeið á hinum ýmsu stigum þjálfunar. Þá styður KSÍ við bakið á Dómarasambandi ís- lands hvað varðar dómaranám- skeið og ráðstefnur fyrir dóm- ara. Ekki er úr vegi að geta þess að Handbók KSÍ kemur út á hverju vori. Hefur hún að geyma mótaskrá sumarsins í öllum flokkum og einnig er þar að finna mjög mikið af upplýsing- um ásamt lögum og reglum KSÍ o.fl. Fréttabréf KSÍ hefur komið , út síðustu tvö ár. Þar er sagt frá starfsemi sambandsins og komið á framfæri upplýsingum og tilkynningum. Nokkur orð um tengsl knatt- spyrnusambandsins við ÍSÍ og UMFÍ? Já, tengsl okkar við ÍSÍ eru fyrst og fremst i gegnum fræðslustarfsemi, þjálfaranám- skeið og útgáfustarfsemi. T.d. hefur ÍSÍ nú nýverið séð um út- gáfu á knattspyrnulögum fyrir okkur. Samskipti við UMFÍ má 8 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.