Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1980, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.06.1980, Blaðsíða 9
segja að séu óbein með héraðs- samböndin og ungmennafélögin sem tengilið en fjöldinn allur af ungmennafélögum iðkar knatt- spyrnu og tekur virkan þátt í ís- landsmótinu. Er vitað hversu margir iðka knattspyrnu? Það er alltaf nokkuð óljóst hve iðkendafjöldi er mikill. Alls- staðar um landið er fótboltinn vinsæll. Miðað við árið 1979 tóku um 320 lið þátt í mótum á vegum KSÍ og er þá miðað við alla aldursflokka. Leikir á árinu voru yfir eitt þúsund fyrir utan innanhússmót þar sem þátttöku- Iið voru tæplega áttatíu. Áhorf- endur að leikjunum í íslands- móti á síðasta ári voru um 85 þúsund. Hver eru helstu verkefni sum- arsins? Stærstu og jafnframt kostnað- armestu viðburðir sumarsins hjá KSÍ er þátttakan í heimsmeist- arakeppninni sem fram fer í ár og á því næsta. Þar erum við í riðli með Wales, Sovétríkjunum, Tékkum og Tyrkjum. í ár höfum við leikið við Wales en leikum við Rússa hér heima 3. sept. en við Tyrki og Rússa úti, síðar í haust. Þá verða leiknir vináttu- leikir við Finna hér heima og Noreg og Svíþjóð ytra. í byrjun júlí ætlum við að koma á nýstár- legri keppni, þ.e. landsleikja- keppni milli íslands — Færeyja og Grænlands sem leika þá sinn fyrsta landsleik. Við höfum boðið þessum þjóðum til þátt- töku og leikirnir fara fram á Akureyri, Húsavík og Sauðár- króki. Þetta verða jafnframt fyrstu landsleikir í knatt- spyrnu á þessum stöðum. Fjármál KSÍ? KSI byggir rekstur sinn svo til eingöngu á tekjum af landsleikj- um eða með öðrum orðum á veðurblíðu þegar landsleikir fara fram. Má segja að sérstök heppni hafi verið með okkur í langan tíma hvað þetta snertir. Af þessu leiðir að fjármál sam- bandsins eru alltaf óviss en und- anfarin ár höfum við ekki þurft að sýna taprekstur hjá okkur. Að lokum. Önnur viðfangs- efni KSÍ? Eins og fram kemur hér að framan eru stærstu verkefni hjá KSÍ skipulagning og fram- kvæmd íslandsmótsins í knatt- spyrnu ásamt námskeiðshaldi og þátttöku í landsleikjum. Það má segja að við séum á þessu ári sér- staklega með hugann við ungl- ingastarfið. Við höfum gert áætlanir til að kynna knatt- spyrnuíþróttina hjá þeim yngstu. Auðvitað vonumst við til og vitum reyndar, að okkur verður vel tekið, ekki síst af ungmenna- félögunum sem ég vona að við eigum í framtíðinni sem best og ánægjulegust samskipti við. Skinfaxi þakkar Jens fyrir spjallið og óskar knattspyrnu- mönnum um land allt góðs geng- is í sumar. SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.