Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1980, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.06.1980, Blaðsíða 14
í tilefni þess að þetta III. tölu- þlað Skinfaxa fjallar að nokkru um knattspyrnu, brá tíðinda- maður blaðsins sér suður í Kópa- vog til að ræða við Rósu Valdi- marsdóttur fyrirliða kvennaliðs UBK í knattspyrnu. Rósa er 21 árs gömul og hefur leikið og æft knattspyrnu síðan hún var 13 ára. Rósa er dóttir hins mikla áhugamanns um knattspyrnu og unglingastarfs Breiðabliks, Valdimars Valdi- marssonar, enda er systir henn- ar, Kristín, einnig í knattspyrn- unni og bræður hennar þrír, Valdimar, Sigurjón og Ásgeir eru allir kunnir knattspyrnu- menn í UBK. Við leggjum nokkrar spurningar fyrir Rósu. Hvenær hófst kvennaknatt- spyrnan í Kópavogi? Kvennaknattspyrnan í Breiða- bliki byrjaði fyrir alvöru um 1970 og kvennalið félagsins hefur jafnan síðan verið í barátt- unni um efstu sætin, og m.a. orðið íslandsmeistari árin 1976, 1977 og 1980 í innanhússknatt- spyrnu og í útiknattspyrnunni árin 1977 og 1979. Frá 1976 hef- ur liðið ekki verið neðar en í öðru sæti í þeim mótum sem það hefur ekki unnið. Hvar er kvennaknattspyrnan sterkust utan Kópavogs og hvað er þátttakan mikil á Islands- meistaramótum ykkar? í sumar verða aðeins þrjú lið i keppninni en það eru auk okkar, Valur og FH. Þetta er þó óvenju lítil þátttaka, en liðin voru t.d. fimm í fyrra og oftast mæta fleiri lið í keppni í innanhúss- knattspyrnunni en á útimótum. Á fyrs^u árunum voru liðin líka mun fleiri. Tekur fólk kvennaknattspyrn- una alvarlega, og fáið þið t.d. sanngjarnt rúm í fjölmiðlum miðað við aðra knattspyrnu- menn? Rósa Valdimarsdóttir. Við sem í þessu erum, tökum íþrótt okkar alvarlega, og leikir okkar eru sóttir af áhorfendum í likingu við yngri flokka félags- ins. Því er hins vegar ekki að neita að okkur finnst að fjöl- miðlar og blaðamenn sýni okkur lítinn áhuga, og oft er hreinlega eins og við séum ekki til, þegar fjallað er af ýmsum aðilum, um íþróttir á íslandi. Hvernig er félagsleg staða ykkar innan UBK eða eigum við að segja innan knattspyrnudeild- arinnar? Hún er sterk og okkur er fullur sómi sýndur þar, enda höfum við góða stjórn í knatt- spyrnudeild Breiðabliks, sem ekki gerir neitt upp á milli flokka eða kynja. Hvernig eru þjálfaramál ykkar og hver er ykkar aðalþjálfari? Eftir gott starf Haraldar Er- lendssonar tók Guðmundur Þórðarson við liðinu og hefur hann verið þjálfari okkar síðustu tvö árin. Auk þess þjálfa ég og Ásta María Reynisdóttir yngri stúlkurnar, en þær eru 7—12 ára gamlar og mæta um þrjátíu tals- ins á tvær æfingar í viku. Að lokum Rósa, hvað heldur þú um framtíð kvennaknatt- spyrnu á íslandi? Kvennaknattspyrnan byggist, eins og önnur félags- og íþrótta- starfsemi fyrst og fremst á for- ustunni og liðsmönnunum sjálf- um. Forysta knattspyrnumála á íslandi hefur lítinn áhuga sýnt okkar starfi, enda mun fátítt að konur sitji þing KSÍ, þótt þar séu að vísu ýmsir fulltrúar sem vilja styðja okkur. Ég tel ekki að kvennaknattspyrnan nái sér verulega á strik hér, fyrr en for- ysta KSÍ fer að sinna henni af al- vöru, og ekki fyrr en við verðum uppgötvaðar af íþróttafrétta- mönnum og fjölmiðlum. Ég er sannfærð um að áhugi finnst nægur hjá stúlkum um land allt, en það þarf að gefa þeim tækifæri og hvatningu til jafns við það sem gert er varð- andi aðrar íþróttagreinar, þetta þurfa forystumenn allra íþrótta- og ungmennafélaga að hafa í huga. Okkur finnst raunar hart að við sem mest höfum stundað knattspyrnuna og erum flestar um tvitugt höfum aldrei fengið tækifæri til að keppa t.d. á Norðuurlandamóti þótt á sama tíma hafi fjölmörg unglinga- og krakkalið verið send í hliðstæða keppni erlendis. Það skyldi þó aldrei vera að gömlu fordómarnir eigi ennþá svona sterk ítök í knattspyrn- unni? S.G. SKINFAXI Knattspyrna kvenna 14

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.