Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1980, Page 31

Skinfaxi - 01.06.1980, Page 31
Umf. Ármann Aðalfundur Umf. Ármanns í Hörgslands- hreppi og Kirkjubæjarhreppi í Vestur-Skafta- fellssýslu var haldinn laugardaginn 5. apríl síðastliðinn. Meðal gesta á fundinum voru Sig- urður Geirdal, framkvæmdastjóri UMFÍ og Guðni Einarsson formaður USVS. Fráfarandi stjórn félagsins lagði fram á fundinum ítarlega ársskýrslu fyrir starfsárið 1979. Á fundinum urðu allfjörugar umræður um starfsemi félags- ins og með hvaða hætti mætti auka virkni fé- lagsmanna og íbúanna á svæðinu í starfsemi fé- lagsins og einnig um aðstöðu fólks á svæðinu til íþróttaiðkana. Reyndust fundarmenn sammála um að í þeim efnum ríkti algjört hörmungar- ástand þar sem engan íþróttavöll er að finna á svæði félagsins þótt félagið eigi að baki 70 ára sögu. I fundarlok var samþykkt áskorun til sveitar- stjórna Hörgslandshrepps og Kirkjubæjar- hrepps þar sem þær eru hvattar til að hefja nú þegar framkvæmdir eða undirbúning að gerð varanlegs íþróttavallar. Stjórn félagsins skipa nú: Sigmar Helgason, formaður, Hraunkoti, Jón Jónsson, ritari, Prestbakka og Hilmar Gunnarsson Kirkjubæj- arklaustri gjaldkeri. Bœndur Verktakar Varahlutir í Massey Ferguson dráttarvélar og Perkins dísilvélar. Höfum á lager mikiö magn -r'5£tT .. pakkn'ingasett. Binnig —' kúplingu, bremsur, rafkern stýri- Skjót og góð afgreiðsla. Hagstætt verð. Sendum í póstkröl Vélar og þjónusta h.f. Járnhálsi 2 — 110 Rekjavík — Síi SKINFAXI 31

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.