Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 4
FRETTIR AF ÞINGUM
UMSK
58. ársþing UMSK var haldið
20. mars síðastliðinn að Hlégarði í
Mosfellssveit. Um 70manns sóttu
þingið og hefur ársþing UMSK
ekki verið jafn fjölmennt um langt
árabil. Oll félögin nema Iþrótta-
félagið Grótta sendu þingfulltrúa
á þingið og flest hver fulla full-
trúatölu.
Þingforsetar voru Ingólfur
Arnason og Páll Aðalsteinsson, en
ritarar þingsins voru þeir Albert
H. N. Valdemarsson og Gunnar
Baldvinsson.
Af hálfu UMFÍ mættu þeir
Pálmi Gíslason og Sigurður Geir-
dal.
Fram kom á þinginu mikill
áhugi fyrir eflingu sambandsins,
sem sjá má afsamþykktum þings-
ins. Yfir 20 tillögur voru bornar
undir þingið og voru þær allar
samþykktar. Má þar nefna tillög-
ur svo sem umsókn til að halda
Landsmót UMFÍ 1991 og að taka
myndarlega þátt í fyrirhugaðri
hjólreiðaferð UMFÍ umhveríis
landið í sumar undir kjörorðinu
„Eflum íslenskt”.
Formaðurinn, Kristján Svein-
björnsson, var endurkjörinn. Aðr-
ir í stjórn voru kosnir þeir Sveinn
Jóhannsson UBK, Jóhannes
Sveinbjörnsson Stjörnunni Sveinn
Ottósson Augnabliki og Ólafur
Magnússon Dreng.
UMSS
Þing UMSS var haldið í
Varmahlíð 20. mars. Af hálfu
UMFI sátu þingið þeir Finnur
Ingólfsson, Skúli Oddsson og
Guðjón Ingimundarson. Þingið
var fremur illa sótt. Formaður
Jóhann Jakobsson ílutti skýrslu
stjórnar ásamt framkvæmda-
stjóra Birni M. Björgvinssyni, en
hún lá fyrir þinginu fjölrituð og
vel unnin. Þar kom fram m.a. að
fjárhagur UMSS er frekar slæmur
og hefur það komið mjög niður á
starfsemi sambandsins. Nokkrar
umræður urðu um fjármál og
skipulagsmál auk annarra mála
og var hugur í mönnum að hréssa
upp á starfsemi UMSS á komandi
ári, en starfsemin hefur verið í
nokkurri lægð að undanlörnu.
Formaður UMSS er Jóhann
Jakobsson, Varmahlíð. S.O.
Formaður UMSS flytur skýrslu stjóm
ar á þinginu.
USVH
Héraðsþing USVH var haldið í
barnaskólanum að Reykjum í
Hrútafirði laugardaginn 27.
mars. Þingið var fjölmennt og
voru mættir fulltrúar frá öllum
aðildarfélögunum. Þingforseti var
Ólafur B. Óskarsson. Gestir
þingsins voru Guðjón Ingimund-
arson, stjórnarmaður UMFÍ, Sig-
urður Geirdal framkvæmdastjóri
og Ingólfur A. Steindórsson rit-
stjóri Skinfaxa. Fyrir þinginu lá
mjög myndarleg og ítarleg skýrsla
um starf sambandsins á starfsár-
inu. I munnlegri skýrslu for-
manns kom fram að starf sam-
bandsins hefur verið mjög kröft-
ugt í vetur. Spurningakeppnin
hefur verið vinsæl og fjölsótt og
gróska í frjálsíþróttastarfi. Það
kom fram að sambandið hefur
fengið inni í félagsheimilinu á
Hvammstanga með skrifstofu fyr-
ir starfsemi sína og mun verða
fiutt þangað inn eftir n okkrar vik-
ur. Á þinginu var samþvkkt að
endurprenta fyrstu árgangana af
Frá þingi UMSK.
4
SKINFAXI