Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 20
KARLAR
Hlaupagreinar
Ef við lítum fyrst á spretthlaup-
in, kemur í ljós að Gísli Sigurðs-
son, Aðalsteinn Bernharðsson og
EgillEiðsson eru sterkastir. I fyrra
var Erlingur Jóhannsson efstur í
100 m og framarlega í 200 og 400
m. Hann er ekki á listanum nú.
Skýringin er sú að hann náði sér
aldrei á strik vegna meiðsla. Það
er ánægjulegt að Aðalsteinn og
Egill skyldu snúa aftur í sín gömlu
sambönd og vonandi verður
minna um það á komandi árum
að ungmennafélagar láti tæla sig í
félög á höfuðborgarsvæðinu. Það
er tími til þess kominn að félögin
þar fari að sinna unglingastarf-
inu, en láti ekki ungmennafélögin
um það verk og fleyti síðan rjóm-
ann ofan af. Nokkrir sem voru á
afrekaskrá UMFI í fyrra hafa
horfið af henni nú. Nokkrir hafa
hætt, aðrir gengið til Reykjavíkur-
félaga, en þeir eru sem betur fer
ekki margir.
f 400 metra hlaupi er nýtt nafn,
Guðmundur Skúlason UÍA, sem
á eftir að láta mikið að sér kveða á
árinu 1982, ef að líkum lætur. Jón
Diðriksson, Brynjúlfur Hilmars-
son og Guðmundur Sigurðsson
eru í sérflokki í 800 og 1500 m, en
árangur í þessum greinum hefur
sjaldan verið jafnari, en sérstak-
lega þó í 800 m hlaupinu. Agúst
Egill Eiðsson og Gísli Sigurðsson háðu oft harða keppni á árinu.
Gunnar Snorrason.
Þorsteinsson og Lúðvík Björnsson
voru framarlega í þessum grein-
um í fyrra, en náðu sér ekki á strik
nú vegna meiðsla. I 3000 m hlaupi
og upp úr er Jón Diðriksson yfir-
burðamaður, en hljóp þó ekki 10
km á braut.
Margir hafa bætt sig nokkuð og
vert er að geta framfara Magn-
Ingimundur Ingimundarson:
Hugleiðingar um afrekaskrána
í frjálsum íþróttum 1981
20
SKINFAXI