Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 10
Guðbjöm og núverandi formaður
UMSK, Kristján Sveinbjömsson, í 60
ára afmæiishófi sambandsins.
trúa noskra ungmennafélaga. Ég
hafði verið á ferð í Noregi og þetta
borist í tal við formann Norsk
Ungdomslag. Þegar ég kom heim
lagði ég það fyrir stjórn UMSK,
hvort við ættum ekki að bjóða
þeim til Islands, og var það sam-
þykkt. Norðmennirnir voru frá
Stavanger, Bergen, Þrándheimi
og 2 frá Osló. Þeir komu sumarið
1924 eða 25. Við fórum með þá
upp í Borgarfjörð, á Þingvöll og
austur um sveitir. Endað var á
fundi í Þrastaskógi, sem haldinn
var á vegum HSK. Norðmennirn-
ir buðu okkur út til Noregs, en
ekki gátum við þegið það fyrr en
árið 1930. Ég skrifaði ferðasöguna
eftir þá ferð í Skinfaxa. Við vorum
fjögur sem fórum þessa ferð, Jón
Þorsteinsson íþróttakennari, Þor-
steinn Bjarnason í Körfugerðinni,
ein kona sem ég man ekki lengur
hvað hét og ég. UMSK stóð fyrir
því að útvega ungmennafélaga til
að snyrta og laga til á Þngvöllum
fyrir Alþingishátíðina 1930.
Stundaðir þú íþróttir á
yngri árum?
Ég var í knattspyrnu í Val frá
því að hann var stofnaður 1911 til
1924 og var ég í aðalkappliðinu á
þeim árum. A þessum árum var
lítið um það að ungmennafélögin
væru með íþróttir í gangi, nema
þá helst glímu, það var ekkert um
það í mínu félagi.
Hvað villt þú segja um
starf ungmennafélaganna
í dag?
Mér finnst vera mikil gróska í
ungmennafélagsskapnum og
segja má furðanlega mikil, því
það kom mikill afturkippur í starf-
semina á kreppuárunum og
stríðsárunum. Það er ángæjulegt
hvað þetta er allt mikið á uppleið,
en aðstaða þessara feíaga er víða
erfið í dreifbýlinu vegna mann-
fæðar.
Skinfaxi þakkar þessum aldna
en síunga félagsmálafrömuði fyrir
spjallið og óskar honum góðrar
ferðar til Svíþjóðar og góðra daga
í ellinni. IS
UM'FÍ
14.JÚNÍ 1982
GÖNGUDAGUR
FJÖLSKYLDUN NAR
Á síðasta sambandsþingi UMFÍ voru allir
fundarmenn sammála um að halda áfram með
„göngudag fjölskyldunnar” og hefur verið ákveð-
ið að hann fari fram sunnudaginn 13. júní. Þessi
starfsemi sern hófst 1980 hefur vakið verðskuld-
aða athygli. Það ár var gengið í fjölmörgum félög-
um og skiptu þátttakendur þúsundum. I fyrra vor-
aði seint og vorverk voru í fullum gangi á þessum
tíma og dró það úr þátttöku, þannig að félög sem
höfðu ákveðið að vera með, hættu við. Vcður var
mjög óhagstætt um allt land þennan dag og dró
það úr þátttöku. Þrátt fyrir þetta var gengið í
mörgum félögum og sem fyrr margar göngur
mjög myndarlegar, þó þær væru heldur færri en
fyrra árið. Mörg félög hafa skrifað mjög góðar
leiðarlýsingar í sambandi við göngurnar.
Það er ekki vafamál að þetta framtak hefur
orðið til þess að fleiri hafa gengið um og skoðað
landið en ella heíði verið. Við höfum heyrt um
marga sem haldið haf’a áfram skipulögðum
gönguferðum..
Ohætt er að tclja að fátt sé jafn liollt og góður
gönguferðir og margt fagurt er að skoða á okkar
ástkæra fósturlandi.
Stjórn UMI' I vill hvetja sem flesta til að sinna
þessum þætti og gera göngudag fjölskyldunnar
1982 að stórum viðburði um allt land.
P.G.
10
SKINFAXI