Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 12
Ungmennafélag íslands er 75
ára á þessu, ári. Stjórn félagsins
hefur ákveðið að minnast þessara
tímamóta á margvíslegan hátt. Á
stjórnarfundi um miðjan febrúar
sl. kom sú hugmynd upp hvort
ekki væri við hæfi að hreyfingin
beitti sér fyrir kynningar herferð á
íslenskri framleiðslu. Þessu var
vísað til framkvæmdastjórnar
sem skipaði nefnd í málið. I
nefndina voru skipaðir Arnar
Bjarnason, Eyjólfur Á. Rafnsson,
Skúli Oddsson og Finnur Ingólfs-
r
V>ridéTo
Bridge er ekki spil fyrir hug-
lata menn. Hugletinginn gerir
það sem honum sýnist best við
fyrsta augnakast. Hann nenn-
ir ekki að fara í saumana á
hlutunum og finna gild rök
fyrir spilamennsku sinni. Þess
vegna tapar hann spilum eins
og þessum:
Spil A
Norður Suður
*2 * AKDI074
AD1052 V 3
0 9653 0 107
* G108 * AK64
Þú spilar 4 spaða í suður
eftir að austur hafði vakið spil-
ið á 1 laufi. Vestur spilar út
laufsjöu. Enga leti nú; hvernig
spilarðu og hvers vegna?!
Spil B
Norður Suður
* A3 A 6'
V 54 KG76
0 G106 0 AKD853
* AG10963 * 54
í þessu spili ertu sagnhafi í
5 tíglum. Vestur gaf spilið og
hófleikinn með því að opna á 1
spaða. Og spilar nú út spaða-
kóngi. Hvernig spilarðu?
Lausnir á bls. 30.
75
ARA
Eflum
íslenskt
son, en Finnur er jafnframt starfs-
maður nefndarinnar.
Eins og oft vill verða í stórum
félagasamtökum þá greinir
menn á um hvað og í hvaða
máium samtökin skuli beita sér.
Eg held að tæplega geti menn
greint á um að hreyfingin skuli
beita sér í þessu máli, máli sem
svo ótvírætt snertir íslenskt þjóð-
félag, því vitað er að atvinnutæki-
færi komandi kynslóða liggja í ís-
lenskri iðnaðarframleiðslu.
Markmið þessa verkefnis verður
að vinna samkvæmt kjörorðinu
„Islandi allt” og þá um leið að
vekja athygli á þjóðræknishug-
sjón Ungmennafélaganna, verk-
efnum þeirra og afli til að virkja
menn til sameiginlegs átaks í
þágu lands og þjóðar. Þessi tíma-
mót verða því að teljast heppileg
til slíks. Megin framkvæmdin
til að veka athygli á málinu
verður hjólreiðaferð í kringum
landið, 25. júní til 11. júlí. Á sama
tíma og hjólreiðaferðin stendur
ylir verður stöðugur áróður fyrir
gildi þess að við veljum íslenska
framleiðslu fram yfir erlenda. Það
er augljóst að ef framkvæmd sem
þessi á að takast vel þá byggist
það að lang mestu leyti á því
hvernig félögin standa að fram-
kvæmdinni.
Þegar ákvörðun var tekin um
að ráðast í framkvæmd þessa
verkefnis, þá var það ekki ætlun
UMFI að hafa framkvæmdina
sem tekjuöflun fyrir hreyfinguna
Það var heldur ekki ætlun að
þurfa að ganga á sjóð samtakanna
vegna verkefnisins. Það var því
eitt af fyrstu verkefnum nefndar-
innar að finna fjárhagslegan
grundvöll fyrir verkefnið. I þeim
tilgangi var haft samband við Fé-
lag Islenskra Iðnrekenda og Iðn-
aðarráðherra og má segja að
beiðni okkar um fjárstuðning hafa
á báðum stöðum verið vel tekið
hvað sem líður framkvæmdum.
Ástæða þess að sú leið var valin að
leita fyrir sér hjá opinberum aðil-
um frekar en að láta bjóða í aug-
lýsingaréttinn á verkefninu, er sú
að þetta á að verða heildar verk-
efni íslenskrar framleiðslu, en ekki
verkefni einhverra útvaldra. Ekki
er hægt að segja að tekist hafi að
fjármagna verkefnið að fullu, en
að því er nú unnið af fullum krafti.
Næstu verkefni nefndarinnar fyrir
utan fjármögnunina er að hafa
samband við Ungmennafélögin
úti um land til að skipuleggja
hvaða leið verði hjólað í gegnum
félagssvæði viðkomandi félaga.
Eins mun nefndin\>enda á nokkr-
ar leiðir fyrir félögin til þess að
nota þetta átak til þess að kynna
framleiðslufyrirtæki á viðkom-
andi stöðum og eins sem beina
kynningu á viðkomandi ung-
mennafélagi. Nefndin mun einnig
þyggja öll góð ráð og ábendingar
um hvernig best verði að fram-
kvæmdinni staðið til heilla fyrir
land og lýð.
Nú á næstu dögum verður farið
að leita eftir upplýsingum frá ein-
stökum félögum. Það er von
nefndarmanna að þau bregðist vel
og skjótt við, því slíkt getur sparað
dýrmætan tíma við útreikning.
Finnur Ingólfsson.
12
SKINFAXI