Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 32
Sextíu ára
afmœlishátið
UMSK
Nokkrir fyrrverandi formenn UMSK og núverandi formaður.
Laugardaginn 20. mars var
haldin afmælishátíð UMSK í
Hlégarði í Mosfellssveit. Nýkjör-
inn formaður sambandsins,
Kristján Sveinbjörnsson, setti
liófið og tilnefndi Pál Aðalsteins-
son veislustjóra. Afmælisnefndin,
en hana skipuðu Kristján Svein-
björnsson og Páll Aðalsteinsson,
haíði sent út boðskort til sveita-
stjórna á sambandssvæðinu, fyrr-
verandi formanna sambandsins,
formanna UMFÍ og ÍSÍ, kepp-
endum og fararstjóra er kepptu
fyrir UMSK á landsmótinu í
Haukadal 1940, fulltrúum á 58.
ársþingi UMSK svo og ýmsum
velunnurum sambandsins.
Mjög góð þátttaka boðsgesta
var í hófinu eða um 180 manns.
Mosfellshreppur og Sláturfélag
Suðurlands gáfu kvöldverðinn,
sem var bæði mikill og góður.
Formaður sambandsins rakti
stuttlega 60 ára sögu UMSK.
Margar ræður voru Iluttar, born-
ar fram árnaðaróskir og UMSK
færðar gjafir. Pálmi Gíslason for-
maður UMFI færði sambandinu
pennasett. Jafnframt heiðraði
hann þrjá gesti í hófinu með
starfsmerki UMFI, en þeir voru
Margrét Bjarnadóttir formaður
Gerplu, Ingólfur Arnason for-
maður Aftureldingar og Jón Ingi
Ragnarsson formaður Knatt-
spyrnudeildar Breiðabliks.
Stúlkur frá Iþróttafélaginu
Gerplu sýndu dýnustökk undir
stjórn Margrétar Bjarnadóttur og
jassballett undir stjórn Jónínu
Karlsdóttur við mikinn íögnuð
veislugesta.
Tveir piltar úr Karatedeild
Gerplu sýndu listir sínar og var
undrun áhorfenda mikil. Sýning-
ar þessar voru mjög vel heppnað-
ar og Gerplu til mikils sóma.
Gerplustúlkur sýna jassballet.
Kristján Sveinbjörnsson heiðr-
aði íþróttafólkið, sem keppti á
landsmótinu í Haukadal 1940
með afmælisfána UMSK, sem var
áprentaður með nafni hvers kepp-
anda. Jafnframt voru heiðraðir
með afmælisfánanum þeir Guð-
björn Guðmundsson fyrsti for-
maður UMSK, Sigurður Skarp-
héðinsson fyrrverandi formaður
UMSK, Pálmi Gíslason formað-
ur UMFI og Sigurður Geirdal
framkvæmdastjóri UMFÍ. Grím-
ur Norðdal haíði orð fyrir íþrótta-
hópnum frá 1940 og þakkaði heið- >
urinn, sem þeim var sýndur.
Hann rifjaði einnig upp ræðu sem
Olafur Thors flutti á 30 ára af-
mæli UMSK.
Afmælishófinu lauk svo með
því að stiginn var dans fram að
miðnætti.
IS.
Hluti veislugesta á afmælishátíðinni.
32
SKINFAXI