Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 33
UNGMENNASAMBAND
EYJAFJARÐAR
Pálmi Gíslason formadur UMFÍ afhendir Jó-
hannesi Geir Sigurgeirssyni fráfarandi for-
manni UMSE, gjöf til sambandsins frá UMFÍ.
Að kvöldi 3. apríl, var haldið
hátíðlegt 60 ára afmæli UMSE,
en sambandið var stofnað 8. apríl
1922. Jóhannes Geir Sigurgeirs-
son setti samkomuna og bauð
gesti velkomna, en veislustjóri var
Sveinn Jónsson. Meðan á borð-
haldi stóð rakti Haukur Stein-
dórsson sögu UMSE í stuttu máli,
sýnd var stutt kvikmynd frá síð-
asta Landsmóti UMFÍ og Gyða
Halldórsdóttir söng. Margar ræð-
ur voru fluttar og góðar gjafir bár-
ust frá UMFÍ, ÍSÍ, Valdimar
Oskarssyni, Haraldi M. Sigurðs-
syni, hjónunum Rebekku Guð-
mann og Hermanni Sigtryggs-
syni, hjónunum Asu Marinósdótt-
ur og Sveini Jónssyni, og Umf.
Þorsteini Svörfuði. Við þctta tæki-
færi voru fimm menn heiðraðir.
Helgi Símonarson og Guðmund-
ur Benediktsson fyrrverandi for-
•þenn UMSE hlutu gullmerki
ISI. Haukur Steindórsson fyrrv.
formaður UMSE, Jóhannes Geir
Sigurgeirsson fráfarandi formað-
ur UMSE og Sigurður Harðar-
son, annar framkvæmdastjóra
síðasta Landsmóts UMFÍ, voru
ulhr sæmdir starfsmerki UMFÍ.
Við þetta tækifæri var skýrt frá
úrslitum í kjöri „íþróttamanns
UMSE” fyrir sl.ár. Þá nafnbót
hlaut Daníel Hilmarsson skíða-
maður frá Dalvík, en hann varð
m.a. íslandsmeistari í stórsvigi á
sl. ári. Skýrt var frá því, að Umf.
Reynir hefði unnið „Sjóvábikar-
inn” á sl. ári, en það félag hlýtur
hann, sem fær flest stig samanlagt
úr öllum mótum UMSE. Þá var
umf. Þorsteini Svörfuði veittur
„Félagsmálabikar UMSE” fyrir
vaxandi og góð félagsmálastörf.
ÞJ.
33
SKINFAXI