Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 15
erlend samskipti
AAG í sumar koma hingað til
okkar danskir frjálsíþróttamenn
°g það eru einmitt vinir okkar frá
AAG sem hafa verið hvað dugleg-
astir að taka á móti UMFÍ hópum
nndanfarin ár, en nú eru þeir að
endurgjalda heimsókn hópsins
sem fór út eftir 18. Landsmótið á
Akureyri.
Uanirnir hafa alltaf lagt mikið
UPP úr því að þessi samskipti taki
til fleiri þátta en íþróttakeppninn-
ar, þótt segja megi að hápunktur
hverrar heimsóknar sé bikar-
keppni UMFÍ og AAG. Við höf-
nm því jafnan ferðast með þessa
hópa um landið og séð til þess að
þeir hafa hitt og kynnst ung-
niennafélögum ásamt því að
skoða landið.
Dagskrá þessarar heimsóknar
er ekki nákvæmlega tímasett þeg-
ar þetta er skrifað, en í stórum
dráttum er hún hugsuð á þessa
leið. Komið til íslands 17. júlí og
dvalið í Kópavogi fyrstu fimm
dagana. Þaðan verður farið í
Súsanna Ankjær formaður Frjáls
íþróttaráðs AAG.
erlend samskipti
stuttar skoðunarferðir og m.a.
haldin kvöldvaka þar sem vonast
er til að danirnir hitti sem flesta af
þeim sem verið hafa gestir þeirra
undanfarin ár. Þá er fyrirhugað
að bikarkeppnin fari fram á
Kópavogsvelli, miðvikudag 21.
júlí.
22. júlí yrði síðan haldið vestur
á Snæfellsnes, en HSH mun að-
stoða okkur við að annast þann
hluta ferðarinnar. Á Snæfellsnesi
er margt að skoða og einnig reyn-
um við að hafa sameiginlegar æf-
ingar með heimamönnum eins og
venja er í þessum ferðum. Þá
verða athugaðir möguleikar á ca.
tveim mótum þessa daga, t.d. eitt
með heimamönnum í HSH ogeitt
annað í samvinnú við borgfirð-
inga.
Það er von okkar að þessi heirn-
sókn takist vel og auki enn þau
kynni og samskipti sem skapast
hafa milli íslenskra og danskra
ungmennafélaga.
SG.
Nokkrir gestgjafanna hjá AAG, sem tóku á móti UMFÍ fólkinu í fyrra.
SKINFAXI
15