Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 7
starf Úllljóts hafi verið á uppleið á
síðasta ári. Á þingið var góð mæt-
ing frá félögum sambandsins og
voru mættir fulltrúar frá 6 félög-
um, en sá háttur er haíður á
þarna, að félögin flytja öll starfs-
skýrslu á þinginu og er þetta at-
hugandi hjá þeim samböndum
sem hafa viðráðanlegan íjölda fé-
laga, því slíkar skýrslur auka
kynningu innan sambandsins og
alltaf geta menn eitthvað lært
hvorir aföðrum. Nefndir störfuðu
á þinginu og við afgreiðslu mála
voru margar ágætar tillögur sam-
þykktar um hin ýmsu mál, má þar
hd. nefna tillögu um Ungmenna-
húðir að Hrollaugsstöðum, gjald-
keranámskeið í samvinnu við Fé-
lagsmálaskólann, átak í kynning-
arstarfsemi USÚ, þátttöku í verk-
efnum vegna 75 ára afmælis
ÚMFÍ, héraðsmót og afmælishá-
tíð USÚ, um skíðamál, íþrótta-
starfsumarsins, íþróttaaðstsöðu á
sambandssvæðinu o.m.fl.
Torfi Steinþórsson í ræðustól á þingi
USÚ.
Þinginu stjórnuðu af mikilli
röggsemi þeir SveinnSighvatsson
og Torfi Steinþórsson, en Torii
var kjörinn fyrsti heiðursfélagi
USÚ á þessu þingi. Ásmundur
Gíslason rakti í stuttu ávarpi störf
Torfa í þágu sambandsins og af-
henti honum áletraða silfurskál
sem þakkarvott frá USÚ og viður-
kenningu á útnefningu hans sem
heiðursfélaga. Frá UMFÍ voru
gestir á þessu þingi þeir Sigurður
Geirdal og Skúli Oddsson, fluttu
þeir báðir ávörp og fjölluðu um
starf heildarsamtakanna, störf
þjónustumiðstöðvarinnar og ýmis
verkefni sem eru á döfinni m.a. v/
75 ára afmælis UMFÍ.
Fjölnir gaf ekki kost á sér í for-
mannskosninguna og voru hon-
um þökkuð vel unnin störfá und-
anförnum árum.
Stjórn USÚ skipa nú:
Páll Helgason, Valjommður.
Asmundur Gíslason, Aíána.
Jón Kr.Jónsson, Val.
Björn Júlíusson, Sindra.
Björn Ragnarsson, Sindra.
Varamenn:
Pröstur Oskarsson, Sindra.
Guðjón Porsteinsson, Umf. Öræfa.
Fjölnir Torfason, Vísi.
S.G.
Framhald á bls. 34
^ingfulltrúar og gestir á þingi USÚ.
SKINFAXI
7