Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 21
Brynjúlfur Hilmarsson.
úsar Friðbergssonar er bætti sig
um 45 sek { 5000 m hlaupinu. Þá
er ekki hægt að ræða um lang-
hlaupin án þess að minnast á
Gunnar Snorrason. Hann virðist
herðast með ári hverju. Hann
uálgast nú mjög fertugsaldurinn.
Hann er skemmtilegur keppnis-
maður og prýðis félagi. Hann er
sá eini innan UMFÍ, sem hljóp
maraþonhlaup á árinu.
Grindahlaupið hefur aldrei
verið betra og þessi grein cr að ná
Guðmundur Nikulásson.
fótfestu, en hefur átt erfitt upp-
dráttar vegna tækjaskorts. Arang-
ur næst ekki upp í þessari grein
frekar en öðrum fyrr en sambönd-
in taka upp keppni í yngri flokk-
unum og gera henni jafnt undir
höfði og öðrum greinum. Það
kemur e.t.v. í ljós á næsta lands-
móti, hverjir hafa nú þegar byrjað
á réttum enda á þessu sviði.
Tími í boðhlaupum er betri en
oft áður, sérstaklega hjá fyrstu
sveitum. I mörgum tilfellum
hlaupa héraðssveitirnar aðeins á
stórmótum, þ.e. Landsmóti
UMFÍ, íslandsmóti, Bikarkeppni
FRI og fjórðungsmótum. Þá hafa
flestir einstaklingar sveitanna
keppt í mörgum greinum. Hlypu
þessar sveitir með óþreytta liðs-
menn yrði útkoman betri.
Stökkgreinar:
Arangur í langstökki og þrí-
stökki er ekkert sérstakur nema ef
vera skyldi langstökk Kristjáns
Harðarsonar. Fæstir þeirra sem
þarna eru taka þessar greinar
nægilega alvarlega til að árangur
verði frambærilegur. Pétur Pét-
ursson og Helgi Hauksson sanna
að „lengi lifir í gömlum glæðum”.
í hástökkinu er hins vegar um
mjög skemmtilega breidd að ræða.
Ef litið er á röð keppenda á lands-
skrá, kemur í ljós að ungmennafé-
lagar standa þar mjög framar-
lega.
Stangarstökkið er með besta
móti. Þessi grein hefur verið horn-
reka og er reyndar enn, en hefur
tekið fjörkipp á höfuðborgarsvæð-
inu. Þeir er hér getur að líta á
skránni eru allir af SV horninu.
Ekki er að efa að efni eru víðar tii í
þessari grein sem öðrum. Það er
aðstöðuleysið sem þessu veldur.
Hafsteinn Þórisson bætti sig um
15 cm í hástökkinu og er mikið
efni og Gísli Sigurðsson bætti sig
úr 2.90 í stangarstökkinu í 4.40 m.
Hressilegar framfarir það. Enn er
Kári Jónsson.
Guðmundur Jóhannesson meðal
bestu þó kominn sé á fimmtugs-
aldur.
Kastgreinar:
Arangur í kúluvarpinu hefur
sjaldan verið svo jafn sem nú.
Meðaltalið er aðeins betra en árið
1975. Þá kastaði Hreinn Hall-
dórsson 19,46 m og Guðni Hall-
dórsson 16,60 m, en þriðji maður
var rétt yfir 14 m. Sama er að
segja um kringluna og spjótið, að
Jón Diðriksson.
skinfaxi
21