Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1982, Síða 8

Skinfaxi - 01.04.1982, Síða 8
Viðtal við ÞÓRÐ JÓNSSON í Laufahlíð Á þingi HSÞ 4. apríl sl. hitti ég liinn aldna en síunga heiðurs- mann Þórð Jónsson í Laufahlíð. Fáir eru það sem sýnt hafa ung- mennafélagahreyfmgunni þá órofatryggð sem Þórður. Lesend- um Skinfaxa er hann kunnur því þar hafa birst eftir hann ljóð nú síðast í 2. hefti 1980. Eg spurði Þórð nokkurra spurninga, fyrst hvenær hann hefði gengið í ungmennafélag. „Ég gekk í ungmennafélagið Geisla árið 1909, þá 12 ára gam- all. Því félagi var skipt árið 1917 og stofnað ungmennafélagið Reykhverfmgur, og hef ég verið í því síðan og er nú heiðursfélagi”. -Þú hefur alla tíð verið virkur félagi? ,Já það má segja það, ég hef setið alla aðalfundi félagsins í Þórdur og Þormóður Ásvaldsson for- maður HSÞ á þingi sambandsins í vet- ur. þessi 65 ár og var formaður frá 1926 -1954 eða í 27 ár samtals”. -Þú hefur líklega setið mörg þing HSÞ þennan tíma? -Mig minnir að það hafi verið 1929 sem ég mætti þar fyrst, þá hét sambandið reyndar Samband þingeyskra ungmennafélaga (SÞU) ég held að það hafi verið 1943 sem því var breytt í HSÞ. Nú síðan hef ég setið öll þing sam- bandsins nema eitt eða tvö. Eg hef hins vegar ekki verið í stjórn sam- bandsins nema í 2 eða 3 ár fyrir 1940, en verið endurskoðandi í tugi ára”. -Nú minnist ég þín frá þingum UMFÍ, þar hefur þú sennilega oft verið? ,Já ég hef mætt á mörgum þingum UMFÍ, fyrst 1943 á Hvanneyri, en það þing var í tengslum við Landsmót UMFÍ sem þar var haldið”. -Tókst þú sjálfur þátt í íþrótt- um? ,,Ég keppti allnokkuð í glímu á yngri árum og átti marga ágæta glímufélaga. Það var mikill kraft- ur í glímunni í þá daga. Þegar fólk kom saman var mikið glímt en nú glíma því miður alltoffáir”. -Finnst þér ekki ýmislegt hafa breyst í sambandi við félagsfundi á þessum árum? , Jú, það sem mér linnst þó sér- staklega er að það var alltaf sung- ið á fundunum áður fyrr og það voru alltaf einhver skemmtileg mál sem tekin voru fyrir, það er nú reyndar gert á fúndum nú, en ég sakna mest söngsins.” -Hvað er þér minnistæðast úr starfinu áður fyrr? ,,Við vorum með bæði vín og tóbaksbindindisflokka sem störf- uðu með góðum árangri. Þá má ekki gleyma byggingu sundlaugar sem lokið var við 1930 hjá Umf. Reykhverfmgi og var mikið átak. Þessari byggingu var þannig hátt- að að fljótlegt var að hleypa vatni úr lauginni og setja trégólf yfir dýpri endann og fékkst þannig ágætur samkomusalur. Síðan var byggt félagsheimili í samvinnu við Reykjahrepp. -Hvað gerir þú'svo í tómstund- um annað en sinna málefnum ungmennafélaga? „Ég hef lengi spilað bridge og tekið þátt í bridsmótum, mér fmnst mjög gaman að spila með ungu fólki. Eg hefalltafhaft gam- an af að starfa með ungu fólki og hefenn”. -Er eitthvað sem þú vildir segja að lokum Þórður? ,,Eg vil óska UMFI og ung- mennafélagshreyfingunni alls hins besta um alla framtíð og ég vil þakka samveru við ungmenna- félaga fyrr og síðar. Eg er sann- færður um að ungmennafélags- hreyfingin er á réttri leið og óska henni gæfu og gengis”. PG 8 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.