Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1982, Síða 9

Skinfaxi - 01.04.1982, Síða 9
Þegar ég kom heim til Guð- björns á Hagamelnum, var hann nýkominn úr bankanum frá því að sækja gjaldeyri, því hann var á leið til Svíþjóðar eftir tvo daga að heimsækja dótturson sinn, sem þar er í námi. Hann var fyrir nokkrum dögum kominn úr mán- aðardvöl í Heilsuhælinu í Hvera- gerði. Kvöldið áður itafði hann verið á fundi hjá Iðnaðarmanna- felagi Reykjavíkur, þar sem hann var gerður að heiðursfélaga og sýndi hann mér skrautritað skjal Hvenær varðst þú for- maður UMSK og hvemig var starfið á fyrstu ámn- um? Á Sambandsþingi UMFÍ 1922 var ákveðið að leysa upp fjórð- ungssamböndin, sem starfað höfðu fram að því og stofna hér- aðssambönd. Kosið var í nefndir á Sambandsþinginu, sem undir- búa áttu stofnun héraðssam- banda. I þá nefnd sem undirbúa átti stofnun UMSK, var ég kosinn VIÐTAL VIÐ GUÐBJÖRN GUÐMUNDSSON FYRSTA FORMANN UMSK UPP á. það. Á 60 ára afmælishátíð UMSK í vetur var Guðbjörn sér- staklega boðinn og honum afhent- ur þar afmælisfáni sambandsins aprentaður með nafni hans. Guðbjörn er orðinn 87 ára gamall og býr einn að öðru leyti eu því að hann leigir skólapilti eitt herbergi. Þó hann beri háan aldur er hann vel ern og heyrir vel og segist aldrei nota gleraugu nema við lestur. Ég legg nokkrar spurn- lr>gar fyrir Guðbjörn og kemst að því að hann hefur mjög skemmti- h'gan frásagnarmáta. Hvenær gekkst þú fyrst í ungmennafélag? Eg gekk í Ungmennafélag Reykjavíkurárið 1920. Þálástarf- Semi félagsins að mestu leyti niðri, en Magnús Stefánsson, sem þá var dyravörður í stjórnarráðinu, Var þá kosinn formaður og dreif félagið upp. Starfsemi félagsins hafði verið mjög öflug fyrst eftir að það var stofnað árið 1907, og meðal annars byggði félagið húsið að Laufásvegi 13, sem nú er Betanía. Veturinn 1924-25 urðu miklir flokkadrættir í félaginu, sem leiddu til upplausnar í því eftir að aðalfundur hafði nánast staðið frá því í febrúar og fram í apríl. Þessir flokkadrættir urðu til þess að félagið lognaðist út af upp úr því. Um vorið 1925 stofnuðum við nokkrir félagar úr Ungmenna- félagi Reykjavíkur nýtt félag, sem við gáfum nafnið Velvakandi. Fjg var formaður þess félags til 1932. Fundir félagsins voru lengst af haldnir í Kaupþingssalnum. Eftir hvern fund vorum við með k afii- veitingar,þar sem félagarnir sáu um meðlætið. Við létum félagana borga eitthvað fyrir kafiið, svo við höfðunt gott upp úr þessu. Eitt af því sem við gerðum í Velvakanda, var að við fórum aðra hverja helgi yfir sumartímann í skoðunarferð- ir um nágrenni Reykjavíkur. ásamt Guðrúnu Björnsdóttur frá Grafarholti, en ég er ekki alveg viss um hver var sá þriðji. Um haustið var svo UMSK stofnaðog þá var ég kosinn formaður og gegndi því embætti til 1932. Ég rugla því stundum saman hvað af því sem gert var hafi verið unnið af félaginu og hvað af samband- inu, því ég var formaður í báðum tilfellum á sama tíma. Meðal þess sem við gerðum hjá sambandinu var að við komum á svokölluðum Farfuglafundum, sem voru fundir þar sem við reyndum að ná öllum ungmennafélögum utan af landi er dvöldu á Reykjavíkursvæðinu yfir veturinn. Þessa fundi héldum við einu sinni í mánuði frá því í október fram í maí. Gelið var út blað í tengslum við fundina og skipuð ritnefnd á hverjum fundi. Oft fengum við menn til að flytja fyrirlestra á þessum fundum. Fyrsta stórvirki okkar í UMSK, var móttaka fimm full- SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.