Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.04.1982, Blaðsíða 19
ling og framkvæmd ínc/a / fimleikum Kristín Jónsdóttir var mótstjóri asamt Agnesi Agnarsdóttur. Kristín fr þekkt innan ungmennafclagshreyf- lngarinnar sem hlaupadrottning úr ^teiðabliki. Ellefu ára dóttir hennar er i fimleikum í Gerplu. Kristín hefur v'erið ritari á mörgum fimleikamótum og hún var ásamt Agnesi mótstjóri á Islandsmótinu í vetur. I hlut þeirra mótstjóranna kom að útvega starfsfólk við mótið og segir hún að það hafi gengið mjög vel. Einn- *g var mikil undirbúningsvinna við samspil tölvu og ritara, þar sem þetta er í fyrsta skipti sem notuð er talva við ntreikning stiga á fimleikamóti. Þá þurfti að koma fyrir nýjum festingum í gólf til að hægt væri að hafa öll áhöld uPpi í einu. Kristín tekur sérstaklega Iram að samstarf við húsvörðinn í höllinni hafi verið mjöggott. Aðspurð segist Kristín vera ánægð mcð hvernig til tókst með mótið og seg*st hafa orðið vör við að erlendu fieppendurnir hafi verið ánægðir með fi'amkvæmdina. .. Afirdómarar mótsins voru Eva ^rrensjö og Jónas Tryggvason. Var tfikill stuðningur f'yrir mótstjórana að fiafa þau til aðstoöar við að leysa ýmis vandamál sem upp komu. Margrét Bjarnadóttir er formaður Gerplu. Þegar Margrét er spurð um und- irbúning og gang mótsins, segir hún að mótstjórarnir Agnes Agnars- dóttir og Kristín Jónsdóttir eigi allan heiðurinn af því að þetta mót gekk svo vel og að þær hafl hreint og beint borið inótið uppi. Margrét var einn af dómurum mótsins, sem dæmdu í flokki stúlkna. Að sögn Margrétar \ oru dómararnir mjög ánægðir með keppnisaðstöðuna og ekkert deilumál kom upp, sem er óvenjulegt á svona mótum. I dóm- nefndinni var einnig Ulla Berg, sem er í stjórn Alþjóða fimleikasambandsins. I tengslum við mótið var haldið dóm- aranámskeið með kennara frá Alþjóða fimleikasambandinu Evva Orensjö. Aðspurð um gang mótsins segist Margrét vera að flestu leyti ánægð með mótið og tel ja það góðan áfanga fyrir Islands hönd. Þá vill Margrét koma því að, að mjöggott samstarf'var við Kristján (). Skagfjörð hf, en þeir sáu um tölvu- vinnsluna, einnig við lúðrasveitina og st jórnanda hennar, en þar mun haíá verið lögð mikil vinna í að æfa upp þjóðsöngva landanna og marsa l’vrir mótið. Skinfaxi kynnir hér sex konur, sem hafa starfað mikið að fimleikamálum. Þessar konur eiga það allar sameiginlegt að eiga börn sem stunda fimleika. Helga R. Stefánsdóttir er varafor- maður Fimleikafélagsins Björk í Hafnarflrði. Tvö börn henanr stunda fimleika. Helga hefur starfað á mótum og sýningum í sínu félagi. Helga og Ingimundur Magnússon stjórnarmaður FSÍ sáu um mót töku erlendu gestanna. Til sparnaðar fyrir FSI var ákveðið að revna að koma erlendu keppendunum fyrir á einkaheimilum. Það kom í hfut Helgu að sjá um að útvega heimili fyrir gestina að dvelja á. Þetta var 83 manna hópur sem kom frá Norður- löndunum. Fararstjórar og dómarar dvöldu á Hótel Esju, en allir keppend- urnir og margir þjáfaranna dvöldu á einkaheimilum. Helga segir að vel liafi tekist að útvega heimili fyrir gest- ina og í flestum tilfellum var það lijá foreldrum unglinga sem stunda fim- leika. Helga er ánægð með livað mót- takan tókst vcl. Þeirsem hölðu gestina á heimilum sínum sáu um að aka þeim til og frá kcppnisstað og fylgdu þeim nánast eftir allan tímann meðan þeir dvöldust hjá þeim. Dagskráin var nokkuð ströng og var því stuttur tími scm gestirnir dvöldu á heimilunum sjállum. Æskilegt helði \erið að hafa rýmri tíma til persónulegra kynna. SKINFAXI 19

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.