Skinfaxi - 01.02.1986, Page 4
Þeir kölluðu mig
"Big Red"
Spjallað við
Steingrím Hermannsson
forsætisráðherra
Texti og myndir: Guðmundur Gíslason
l
Það eralkunna að Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra er mikill
áhugamaður um íþróttir og útivist. Hann
er mikill stuðningsmaður íslenska
landsliðsins í handknattleik og reynir að
sjá sem flesta leiki þess, bæði heima og
erlendis. Nú síðast fylgdist hann með
lokaspretti liðsins úti í Sviss. Til þess að
fræðast meira um þennan áhuga hans á
íþróttum, svo og ferli hans sjálfs á
íþróttasviðinu, spjallaði undirritaður við
hann einn föstudagsmorgun fyrir stuttu
síðan.
Hefurðu lagt stund á einhverjar
íþróttir?
Já, ég var mikið í íþróttum á yngri
árum, en þó æxlaðist það þannig, að ég
stefndi aldrei að neinum stórafrekum á
því sviði, enda kannske ekki maður til
þess. En á menntaskólaárunum
stundaði ég mikið sund og handbolta og
fór einnig mikið á skíði. Ég vandist
snemma á útivist með föður mínum.
Ætli ég hafi ekki verið um það bil 10
ára, þegar ég fór fyrst með honum á
rjúpnaveiðar.
Leggurðu enn stund á einhverjar
íþróttir?
Já, það geri ég, syndi flesta daga, fer á
skíði og stunda veiðar hvenær sem ég
get og badminton spilaði ég um árabil.
Þá er ég að byrja að æfa mig í golfi.
Hvað um aðrar íþróttir?
Á menntaskólaárunum var ég í frjálsum
íþróttum, mest kringlu-, kúlu-, og
spjótkasti. Þó varð ég að leggja þetta
allt niður í ein tvö ár, eftir að ég varð
fyrir því slysi í leikfimistíma að slíta
vöðva í baki.
Vannstu til einhverra verðlauna?
Aðeins smáverðlaun í unglingaflokki,
yfirleitt 2. eða 3. verðlauna.
Kepptirðu fyrir eitthvert félag á
þessum árum?
Á þeim árum gekk ég í KR og keppti
með því liði, og ég tel mig enn í dag
vera KR-ing.
Stundaðirðu fþróttir meðan þú
dvaldir við framhaldsnám í
Bandaríkjunum ?
Já, reyndar. Ég fór þar bæði í frjálsar
íþróttir og fjölbragðaglímu.
Hvers konar fjölbragðaglíma var
það?
Það var olympiska glíman, hún er
ekkert lík þeirri, sem stundum má sjá í
sjónvarpi. Ég sagði þó þjálfaranum
fyrst, að ég hefði hlotið bakmeiðsli.
Hann lét það ekki á sig fá en lét mig
sippa í hálftíma fyrir hverja æfingu.
Hann rak mig vægðarlaust áfram, ef ég
slakaði á. Síðan lagði hann mig á bekk
og nuddaði mig duglega. Síðan hef ég
aldrei vitað af þessum meiðslum, og tel
mig eiga þessum þjálfara mikið að
þakka fyrir það.
Kepptirðu eitthvað í fjölbragða-
glímunni?
Já ég keppti oft og þá í léttþungavigt.
"...fékk viðumefnið BigRed"
Hvemig gekk þér í keppnum?
Ég var orðinn nokkuð góður í glímunni
og vann oft. En þetta er ein sú erfiðasta
íþrótt sem ég hef stundað. Þá fór ég
aftur að stunda frjálsar íþróttir, eftir að
bakmeiðslin háðu mér ekki lengur . Ég
náði 13 m. í kúluvarpi og 42 m. í
4
Skinfaxi 1. tbl. 1986