Skinfaxi - 01.02.1986, Blaðsíða 15
Reynir Pétur í heimsókn
T exti og myndlr: Guðmundur Gíslason
Nú fyrír skömmu kom göngugarpurirm
Reynir Pétur Ingvarsson í heimsókn á
skrifstofu UMFI. Að því tilefni afhenti
Sigurður Geirdal honum smá gjöf frá
UMFÍ sem var bláhvíti fáninn. En eins
og flestir vita þá hefur Reynir Pétur
mikinn áhuga á fánum og öllu er
viðkemur þeim. Því er ekki fráleitt að
ætla að bláhvíti fáninn verið einhvern
tíma á næstunni við hún á Sólheimum, en
Reynir flaggar oft hinum ýmsu fánum er
hann á. Hér fylgja með myndir frá
heimsókn hans til okkar, en með honum
var Halldór forstöðumaður Sólheima.
Utansveitar brandari
Eitt sinn eftir deildarfund Kaupfélags Héraðsbúa lentu menn í
afmæli. Áttu þá bændur bágt með að skipta um umræðuefni
og héldu fundarhaldi áfram, enda ekki á eitt sáttir. Einn
skörunglegur bóndi kveður upp úr með það að orðið "skuld”
sé óhæft ííslensku máli, þvílíka andstyggð megi enginn bera
sér í munn framar. Reikningshalli séþað orð sem menn skuli
muna að nota í staðinn. Svarar þá bifvélavirki nokkur af
bragði: "Þáyrði að breyta faðirvorinu sí svona ...fyrirgef oss
vorn reikningshalla". Féllþá talið niður.
Þjálfari óskast
í sumar
Umf. Eilífur, Mývatnssveit
auglýsir eftir þjálfara á komandi
sumri fyrir frjálsar íþróttir, sund
og yngri flokka í knattspyrnu.
Fullt starf.
Húsnæði (íbúð) fyrir hendi í
næsta nágrenni við alla
æfingaaðstöðu.
Hafið samband við skrifstofu
UMFÍ (Hörður) eða við:
Harald Bdasson
sími: 96-44237/44250
Skinfaxi 1. tbl. 1986
15