Skinfaxi - 01.02.1986, Page 24
þessari umferð, vissi á ýmislegt óvenjulegt
í þessari heimsmeistarakeppni.
Undirritaður hefur aldrei verið tiltakanlega
taugaveiklaður fyrir eigin leiki, jafnvel þó
þeir hafi skipt einhverju máli. Hins vegar
var fiðringur undir bringspölunum allan
föstudaginn langa fyrir Rúmeníuleikinn, og
mér varð á að hugsa, hvernig skyldi
aumingja strákunum líða?
Leikurinn fór jafnt af stað. í síðari hálfleik
höfðu Rúmenar jafnan 1-2 marka forskot,
þar til í lokin, er okkar menn jöfnuðu og
komust yfir 24-23. Guðmundur
Guðmundsson innsiglaði sigurinn í lokin,
25-23, eftir að Rúmenum hafði mistekist
sókn. Áfanga var náð, íslenska liðið var
komið f milliriðil. Raunar unnu Kóreumenn
lfka Tékka, svo þeir síðarnefndu féllu niður
í botnriðilinn, og sömu örlög hlutu einnig
Pólverjar eftir baráttujafntefli við Spánverja.
Kúbumenn sátu einnig eftir, eftir frækilega
ferammistöðu gegn risunum í A-riðli, og
svo Alsírmenn í D-riðli eins og búist var
við. Framundan hjá íslendingum var barátta
við Dani, Svía og Ungverja um réttinn til að
keppa um 1-11. sæti í keppninni.
Fyrsti leikurinn var við Ungverja, og
hann tapaðist með einu marki, 20-21. Það
var nú líklega ekki hægt að ætlast til að
íslendingar legðu þriðju
Austur-Evrópuþjóðina í röð, en þrátt fyrir
það lék íslenska liðið vel lengst af. Slæmar
sóknarvillur í fyrri hálfleik gerðu það þó að
verkum að íslendingar höfðu aðeins eins
marks forskot í hálfleik, en hefðu þessar
villur ekki verið gerðar má allt eins hugsa
sér þetta forskot 3-4 mörk. Ungverska
maskínan mallaði margsplittuð í síðari
hálfleik og fór að lokum yfir litla ísland, en
hefði forskotið í hléi verið meira er ekki
víst hvernig farið hefði. Hins vegar höfðu
Ungverjar með sér lukkugyðjuna á mótinu.
En þeir léku líka yfirvegað og náðu árangri
sem fáir bjuggust við. Þetta tap var engin
skömm, síður en svo.
(fc Loks lágu
Mf Danir íþví
Næstir voru Danir. íslendingar vissu
um tök sfn á Dönum, og um það að Danir
höfðu ekki eins sterku liði á að skipa og oft
áður. En samt stóð sú staðreynd óhögguð
fyrir leikinn , að hversu oft sem okkar
mönnum hefur tekist að leggja Dani í
handbolta, hafði það aldrei tekist á
heimsmeistaramóti. Leikurinn var járn í
járn fram að hléi. Staðan var þá jöfn
10-10, og Danir ávallt verið á undan að
skora. í hálfleik skipti um. Einar
Þorvarðarson var sem skotheld regnhlíf í
markinu, og danska regnið komst lítt áleiðis
. Á meðan hellirigndi á danska markið og
það fór f bólakaf. 1 lokin skjalfesti Kristján
Arason auðmýkingu danskra með
þrumuskoti langt fyrir utan punktalínu.
Um leið rann tíminn út. Úrslitin 25-16.
Hafi einhver orðið hissa á sigrum
íslendinga á Tékkum og Rúmenum, þá var
sá hinn sami það ekki lengur.
Leikurinn gegn Dönum var mikilvægur
íslendingum vegna þess að þrátt fyrir tap
gegn Svíum ætti íslenska liðið góða
möguleika á að keppa um 5. sætið. Sex
fyrstu sætin tryggja þátttökurétt á
Olympíuleikunum í Seúl, svo hér var ekki
um að ræða neitt smámál. Enda sögðu
danskir blaðamenn eftir leikinn: "Þar fór
ólympíusætið".
Það fór líka svo að íslendingar töpuðu
fyrir Svíum. Byrjunin í þeim leik var ekki
ósvipuð og í leiknum við Suður
Kóreumenn, Svíar náðu strax
yfirburðaforskoti. Það var þó ekki nema að
hluta til að kenna mistökum Islendinga,
dómgæsla Júgóslavanna í leiknum var
hreint furðuleg. Það var varla liðin hálf
mínúta þegar fyrsti íslendingurinn var
kominn útaf í tveggja mínútna refsingu,
fjórum sinnum var dæmt skref á íslendinga
f sókninni á skömmum tíma, og á meðan
skoruðu Svíar með ótilteknum skrefafjölda.
íslenska liðið þoldi ekki þetta mótlæti, en
klóraði þó í bakkann í lokin og tapaði með
aðeins fjórum mörkum.
JjjjJl^ Mikil óvissa
Það varð ekki séð fyrr en öllum leikjum
var lokið fimmtudagskvöldið ó.mars, hvar
íslenska liðið myndi hafna í
úrslitakeppninni 7. og 8. mars. Þessu olli
hin fáránlega 25 prósent regla, sem gilti á
mótinu. Meira að segja ekki nema sumir
forráðamenn mótsins skildu hana. Hún
gengur í stuttu máli út á það, að verði tvö
lið jöfn að stigum skal gert upp á milli
þeirra á þann hátt að leikir gegn liðum sem
ná ekki 25 prósent árangri í for- og
milliriðli teljast ekki með. Það fylgdi
sögunni hjá innstu koppum í búri
Alþjóðahandknattleikssambandsins að
reglan væri sett til þess að fáránleg úrslit í
leikjum sterkra þjóða gegn mjög lélegum
þjóðum skiptu ekki máli f lokauppgjöri.
Þetta er ágætur punktur út af fyrir sig, en
hvers vegna menn sjá ástæðu til þess að
gæta að slíkum atriðum þegar 12 bestu
þjóðir heims eiga í hlut, skil ég ekki. Þessar
Þorbjöm lætur vaða á mark Rúmcna
(Ljósmynd: Bjamleifur Bjamleifsson)
Atli íleiknum við Ungvetja
(Ljósmynd: Bjamleifur Bjamleifsson)
þjóðir höfðu þó fjandakornið áunnið sér
þátttökurétt í lokakeppni HM, og búið var
að fella út fjórar af sextán.
En það skipti sem sagt jafnvel öllu máli
fyrir íslendinga, að Kórea yrði fyrir neðan
strik ef einhver yrði þar yfir höfuð. Þetta
gerðist, og því kepptu okkar menn um 5.
sætið. Hins vegar hefði ekki þurft 25
prósent regluna til, okkar menn voru einnig
í þriðja sæti í milliriðlinum ef reiknað var
út markahlutfall. Sumir spekingar sem tjáð
hafa sig um heimsmeistarakeppnina segja
að það hafi verið mesta lán íslendinga að
tapa fyrir Suður Kóreu. Þess vegna er rétt
að minna á það hér, að ef íslendingar hefðu
unnið Kóreu hefði ekki þurft neinn
samanburð til, þá hefði þriðja sætið í
milliriðli verið gulltryggt.
Það fór svo að Ungverjar töpuðu ekki
leik, og fóru beint í úrslitaleik mótsins.
Svíar töpuðu aðeins fyrir Ungverjum og
kepptu um bronsið. íslendingar kepptu um
fimmta sætið eftir þrjú töp, og Danir um
það sjöunda eftir jafnmörg töp. Rúmenar
töpuðu fjórum leikjum í riðlakeppninni og
kepptu um níunda sæti, og Kóreumenn
kepptu um ellefta sæti einnig eftir fjögur
töp. Upp á milli þessara sfðastnefndu liða
var gert með 25 prósent reglunni, og raunar
ekki fyrr en daginn eftir að leikjum lauk í
riðlum. Þessu olli allur ruglingurinn í stjórn
Alþjóðahandknattleikssambandsins
varðandi þessa reglu og er vonandi að sú
stjórn beri gæfu til að setja fyrir næsta
heimsmeistaramót reglur sem hún skilur
sjálf.
í hinum milliriðlinum töpuðu Júgóslavar
ekki leik, og fóru beint í úrslit, eins og þeir
höfðu reyndar lagt drög að strax f forriðli
með því að sigra bæði Austur Þjóoðverja
og heimsmeistarana sjálfa, Sovétmenn.
Austur Þjóðverjar urðu í öðru sæti, eftir tap
gegn bæði Júgóslövum og Spánverjum,
sem tryggðu sér með sigri á Austur
Þjóðverjum og Sovétmönnum f tveimur
síðustu leikjunum ólympfusæti . Þeir urðu
24
Skinfaxi 1. tbl. 1986