Skinfaxi - 01.02.1986, Side 27
Iþróttamaður ársins 1985
Texti og myndir: Guðmundur Gíslason
Nú í byrjun janúar var
íþróttamaður ársins 1985 kosinn af
samtökum íþróttafréttamanna, og
yar þetta í 30. sinn. Eins og oft
áður eru margir er koma til greina
við svona kjör og stundum erfitt að
gera upp á milli manna og afreka.
Að þessu sinni var Einar
Vilhjálmsson spjótkastari úr
UMSB kosinn íþróttamaður ársins
°g er hann mjög vel að þeim titli
kominn, en hann náði mjög góðum
árangri á síðasta ári. í öðru sæti
var annar ungmennafélagi Eðvarð
Þór Eðvarðsson sundmaðurinn
snjalli úr UMFN sem vann það
afrek að komast inn á Evrópu- og
heimslistann í sínum greinum á
hðnu ári. Það var Vilhjálmur
Einarsson faðir Einars er afhenti
syni sínum verðlaunin að þessu
smni, en hann hefur oftast verið
kosinn íþróttamaður ársins eða alls
^ sinnum. Ungmennafélag íslands
öskar þeim Einari og Eðvarð til
hamingju með þennan árangur svo
°g öllum öðrum er fengu atkvæði
að þessu sinni, með von um
velgengni í framtíðinni bæði innan
°g utan vallar.
Einar Vilhjálmsson UMSB íþróttamaður
ársins 1985
Nú í desember s.l. kom UMFK-blaðið út,
og erþað 14. árgangurinn af þessu blaði. í
blaðinu er sagt frá því sem gerðist á árinu
hjá Ungmennafélagi Kcílavíkur m.a. viðtal
við Má Hermannsson frjálsíþróttamann er
kjörinn var íþróttamaður UMFK árið 1985.
En Már stóð sig mjög vel á s.l. ári var
m.a. í hópnum er fór frá UMFÍ til
Danmerkur í sumar er leið. Þá er einnig
viðtal við Valþór Sigþórsson er kjörinn var
knattspyrnumaður UMFK 1985, en eins og
flcstir vita þá stóðu Keflvíkingar sig vel í
Eðvarð ÞórEðvarðsson UMFN er varð í
öðru sæti.
1. deildinni í knattspyrnu s.l. sumar. Þó að
blaðið sé fjáröflunarleið fyrir UMFK með
auglýsingasöfnun þá er mikið og gott efni í
því, en því er dreift í hús í Keílavík. Mörg
félög og héraðssambönd nota þessa
fjáröflunarleið, en það virðist sem betur fer
hafa færst í vöxt nú á síðustu árum að
meira sé lagt í að hafa gott efni í slíkum
blöðum. Vonandi fara þau félög er ekki
hafa gefið út slík blöð að dæmi hinna og
gefi út blöð um störf sín um leið og þau
afla sér tekna.
íþróttafólkið er varí tíu efstu sætunum ásamt aðstandendum þeirra er ekki
gátu mætt
U.M.F.K - blaðið
Skinfaxi 1. tbl. 1986
27