Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1986, Síða 32

Skinfaxi - 01.02.1986, Síða 32
Við ritstjóm í 25 ár spjallað við Stefán á Kagaðarhóli Texti og myndir: Guðmundur Gíslason Þeir sem eitthvað fylgjast með útgáfustarfi ungmennafélaga og héraðssambanda kannast við rit USAH er heitir HÚNAVAKA. Ritstjóriritsins fráupphafi eða írúm 25ár hefur verið Stefán Á. Jónsson, Kagaðarhóli. Fyrstu árin var samstarfsmaður hans Þorsteinn Matthíasson skólastjóri á Blönduósi en hann hætti síðan en Stefán hélt áfram. Er ritstjóri Skinfaxa var áþingi USAH um daginn notaði hann tækifærið og hafði stutt spjall við Stefán um Húnavökuna, og fer það hér á eftir. Stefán! Hvenær byrjuðuð þið að gefa Húnavökuna út? Fyrsta ritið kom út 1961. Et þá 25 ára afmæli ritsins nú í ár? Nei, afmælisritið vegna 25 ára afmælisins kom út s.l. ár. Hver er aðdragandinn að því að þið byrjuðuð að gefa út þetta rit, og böfðuð þið einhverja fyrirmynd? Ja það var nú engin sérstök fyrirmynd. Við vorum búnir að velta nokkuð fyrir okkur að gefa út svona rit. Það var fyrst og fremst áhugi á að gefa út héraðsrit. Fyrstu 2 ritin voru vélrituð og svo fjölrituð. Það fyrsta var 54 síður að stærð í brotinu A-4. Það fór allt páskaleyfið mitt íþetta. Það hefur verið mikil vinna við að koma þessu fyrsta riti út? Já það var það, því upplagið var 200 eintök og við höfðum bara handsnúinn fjölritara. Og svo þurftum við að raða þessu saman og hefta, og einnig límdum við kjölinn. Þannig að þetta var mikið verk fyrir utan að safna efninu saman. Ef ég man rétt þá fór allt páskaleyfið mitt þetta ár í þessa vinnu. Það hefur ekki dregið úr ykkur kjarkinn að sjá hve mikil vinna var við að koma svona riti út? Nei, það var bara að halda áfram. A næsta rit fengum við fjölritaða kápu annars staðar frá, betur úr garði gerða. Við vorum nú ekki með neinar ljósmyndir í fyrstu ritunum, en vorum með teikningar. Hefur þú verið við þetta frá upphafi Stefán? Já ég hef verið við þetta frá upphafi. Hvernig var þessu tekið í upphafi? Nokkuð vel held ég megi segja, Það var fyrst og fremst áhugi. við seldum ritið og það stóð svona nokkurn veginn undir sér með því að reikna engin laun við þetta. Hafa aldrei verið greidd nein ritlaun? Það hafa aldrei verið reiknuð nein laun né borguð ritlaun allt frá upphafi. Keypti fólk strax ritið? Já, ég held að það hafi keypt það fyrst aðallega fyrir forvitnissakir. Það var heldur þá ekkert slíkt til hér um slóðir. Síðan hefur það farið vaxandi að menn hafa haft áhuga á þessu. Hvenær ársins kemur ritið út? Við reynum alltaf að koma því út um leið og Flúnavöku vikan er. Hér áður'-fyrr var það um páska nú er það um sumarmálin, þannig kemur ritið alltaf út fyrri hluta ársins. Éruð þið aldrei í vandræðum með efni? Það var stundum, en nú á seinni árum hefur verið meira um efni og oft meira en við gátum birt. En þá höfum við bara geymt það til næsta árs. Við höfum nú líka orðið að velja úr því efni er okkur hefur borist, og sumt höfum við ekki birt vegna þess að okkur hefur ekki fundist það nægilega gott, þó höfum við verið frjálslyndir í því efni. 32 Skinfaxi 1. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.