Skinfaxi - 01.12.1992, Side 5
Skinfaxi
á tímamótum
Enn á ný stendur Skinfaxi á tímamótum. Fyrir skömmu
var útgáfa tveggja næstu blaða boðin út. Samið var við
Jóhönnu S. Sigþórsdóttur blaðamann um ritstjórn þessara
blaða.
Að undanförnu hafa verið verulegir erfiðleikar í útgáf-
unni og sýnt að ekki var hægt að halda áfram á sömu
braut. Til að standa undir útgáfunni þarf miklu tleiri áskrif-
endur. Að undanförnu hefur starfað öflug ritstjórn og
áhugasamur ritstjóri. Blaðið hefur verið vandað með mörg-
um áhugaverðum greinum og mikilsverðum upplýsingum
og þeir sem hafa tjáð sig um útgáfuna hafa verið ánægðir.
En þrátt fyrir þetta hefur áskrifendum lítið íjölgað. Fyrir
tveim árum var útgáfunni breytt úr sex blöðum í fjögur
og var það eingöngu gert í sparnaðarskyni.
Raddir hafa verið uppi um að gera blaðið að ársriti eða
jafnvel að leggja það niður. Það væri mjög slæmt fyrir
ungmennafélagshreyfinguna. Þótt Skinfaxi verði aldrei það
sem hann var í byrjun þessarar aldar þá er hann mikilsverð-
ur hlekkur í upplýsingastreymi til forystumanna hreyfmgar-
innar. Því má segja, að eðlilegra hefði verið að umræðan
stæði um fjölgun blaða. Svo mikilsvert er talið að blaðið
komist til forystumanna hreyfmgarinnar að á Sambands-
ráðsfundi nú fyrir skömntu var samþykkt tillaga þess efnis
að öllum félögum og héraðssamböndum verði sent blaðið
og þau hvött til að gerast áskrifendur. Á sama máta hefur
forystumönnum félaga verið sent blaðið á undanförnum
árum. Sem betur fer hafa margir brugðist vel við og eru
tryggir lesendur og áskrifendur. En því miður hafa margir
forystumenn hafnað þessum mikilvæga miðli og reyndar
alltof margir fengið blaðið en ekki greitt. Auðvitað hefði
átt að strika þá strax af áskrifendaskrám sem ekki greiða
blaðið. En með því að leggja metnað í að bæta blaðið
höfum við vonast til að fleiri mundu greiða. Ritstjórn hef-
ur ákveðið að senda blaðið framvegis aðeins til skilvísra
greiðenda.
Áskorun mín til ykkar sem nú eigið ógreiddan seðil er
sú að bregðast vel við og til ykkar allra að vinna að efl-
ingu blaðsins með nýjum ákrifendum þannig að umræðan
í framtíðinni verði um að auka útgáfuna í stað þess að
draga hana saman.
Starfsemi ungmennafélagshreyfmgarinnar hefur aldrei
verið öflugri en nú og um lejð hefur sjaldan verið meiri
þörf fyrir það starf sem þar er unnið. Æskulýðsstarfið,
hvort sem það eru íþróttir eða önnur félagsstarfsemi, er
besta vörnin gegn ÍJölmörgum vágestum sem á leið æsku-
lýðsins eru.
Starfsemi félaganna er mjög fjölþætt og styrkleikinn felst
m.a. í því að vinna í takt við tímann og í raun hafa félög-
in haft forystu og rutt braut á ýmsum sviðum. Umhverfis-
málin hafa alla tíð verið ofarlega á baugi, allt frá því að
frumherjarnir hófu skógrækt og til dagsins í dag þar sem
flest félögin hafa valið sér eitthvert umhverfisverkefni. Fyr-
ir tíu árum var hafin barátta undir kjörorðinu „Eflum ís-
lenskt" þar sem fólk var hvatt til að kaupa innlenda fram-
leiðslu frernur en innflutta. Nú hafa fleiri tekið undir þetta
mál og skilningur á nauðsyn slíkrar baráttu er meiri.
Þetta ár sem nú er að líða hefur verið ungmennafélags-
hreyfingunni hagstætt. Unglingalandsmótið á Dalvík tókst
með eindæmum vel og sú umgengni og framkoma sem
unga keppnisfólkið sýndi þar sýnir að við erum á réttri leið
í okkar áróðri. Ákvörðun hefur verið tekin um að halda
slík mót áfram og verður það næsta 1995. Þjónustumiðstöð
UMFÍ hefur fengið stærra og hentugra húsnæði undir starf-
semina. Vegna mikillar ásóknar í gistingu var sú fram-
kvæmd nauðsynleg. Margir hafa lagt þessum skiptum lið
með vinnu eða framlögum og sýnir það þann hug sem
margir bera til hreyfingarinnar.
Hér hef ég nefnt aðeins fáa þætti úr fjölbreyttu starfi
ungmennafélagshreyfmgarinnar. Það er nauðsynlegt að
miðla upplýsingum um hvað er efst á baugi og hvað gert
hefur verið. Þess vegna er nauðsynlegt fyrir ungmennafé-
lagshreyfmguna að hafa málgagn. Því heiti ég á þig, kæri
félagi, að leggja þitt af mörkum til þess að Skinfaxi megi
verða útbreitt blað og komi inn á heimili flestra forystu-
manna í félögum og samböndum og þeirra sem áhuga hafa
á öflugu starfi þessara samtaka.
Skinfaxi er vettvangur fyrir samstöðu ungmennafélaga.
Öflugur og útbreiddur Skinfaxi yrði hreyfmgunni mikill
styrkur.
Pálmi Gíslason
Skinfaxi óskar lesendum sínum
gleðilegrar jólahátíðar
Skin/axi
5