Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1992, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.12.1992, Blaðsíða 13
Kristín Guðmundsdóttir sundþjálfari: Ekur 600 kílómetra á viku til þess að þjálfa „Ég hefnú þjálfað í sundi hjá íþróttafélagi fatlaðra i Reykjavík í um það bilþrjú ár. Ég datt eigin- lega óvart inn íþetta, þvísá sem er landsliðsþjálfari í sundi núna, Erlingur Jóhannsson, plataði mig til að taka þetta að mér i hálft ár, meðan væri verið að leita að öðrum þjálfara. Svo gat ég ekki hætt. Ég erþví enn íþessu og er rétt að byrja!“ Þetta segir Kristín Guðmundsdóttir sundþjálfari, sem hefur þjálfað að und- anförnu hjá íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík. Kristín þjálfar nokkra þeirra sundmanna, sem kepptu á ólympíuleik- unum í Barcelona sællar minningar og komu heim með skínandi verðlaunapen- inga. Þeirra á meðal er Birkir Rúnar Gunnarsson, sem rætt er við hér í blað- inu. En hvað skyldu þessir sundmenn vera að gera núna? Eru þeir enn í hvíld, eða Bankastræti 6. Simi 18600 Krislín ekur um 600 kílómetra á viku til þess aó geta þjálfað fatlaða í sundi. farnir að þjálfa af krafti fyrir nýtt mót? Hvernig fer sú þjálfun fram? Er kannski notuð einhver töfraformúla til að koma svo mörgum á verðlaunapall eins og raun bar vitni á sjálfum ólympíuleikun- um? Og hvað með þjálfarana, sem oft vilja gleymast í hita leiksins? Með þessar spurningar í huga, og margar fleiri, var ákveðið að leita í smiðju til Kristínar. Hún stundar nú nám í íþróttakennaraskólanum á Laugar- vatni og er þar á öðru ári. Hún leggur töluvert á sig til þess að geta þjálfað sundfólkið, því hún kemur til Reykjavík- ur tvisvar í viku til þess arna. Svo kemur hún líka um helgar og notar þær einnig til þess að þjálfa af krafti. „Þetta eru sex hundruð kílómetrar sem ég ek í hverri viku til þess að geta sinnt þessu. Ég er tilbúin til þess að leggja töluvert á mig, því ég er svo hrædd um að ég fái þau ekki aftur, ef ég sleppi þeim,“ sagði hún. „Þau, sem æfa oftast, mæta til mín fjórum sinnum í viku. Þetta eru 10-12 manns, sem eru í hópnum.“ Einstaklingsþjálfun „Ég verð að stíla mikið upp á einstakl- ingsþjálfun, því þau eru svo mismun- andi. í hópnum hjá mér eru blindir ein- Skinfaxi /J

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.